Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 688. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1176 — 688. mál.
umhverfisráðherra við fyrirspurn Katrínar Ásgrímsdóttur um eftirlit og þvingunarúrræði Umhverfisstofnunar.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hyggst ráðherra fylgja því eftir að Umhverfisstofnun feli heilbrigðisnefndum eftirlit og þvingunarúrræði þar sem það á við, svo sem á Austurlandi?
Samkvæmt lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, er gengið út frá því sem aðalreglu að eftirlit með þeim þáttum sem undir lögin falla sé í höndum heilbrigðisnefnda. Samkvæmt 3. mgr. 18. gr. laganna fer Umhverfisstofnun aðeins með beint eftirlit að lög mæli svo fyrir eða ráðherra ákveði það með reglugerð að höfðu samráði við stofnunina þegar um landið allt er að ræða og við heilbrigðisnefndir þegar um einstök svæði er að ræða. Stofnuninni er heimilt að framselja eftirlit sem hún fer með til heilbrigðisnefnda með samningi ef ósk berst um það en ekki er í slíkum samningum heimilt að fela heilbrigðisnefndum framkvæmd þvingunarúrræða.
Ráðuneytinu hefur borist erindi frá heilbrigðisnefnd Austurlands um flutning á tilteknum eftirlitsverkefnum frá Umhverfisstofnun til Heilbrigðiseftirlits Austurlands, þ.e. eftirlit með álveri Reyðaráls, olíubirgðastöðvum og fiskeldi. Ráðuneytið hefur lýst þeirri skoðun að ekkert sé því til fyrirstöðu að gerður verði samningur milli Umhverfisstofnunar og heilbrigðisnefndar Austurlands um flutning þessara eftirlitsverkefna, enda eru fordæmi fyrir slíku. Þar má m.a. nefna samning frá 1995 um eftirlit með fiskimjölsverksmiðjum og frá 1998 með sorpförgun og spilliefnamóttöku á Austurlandi. Að mati ráðuneytisins hefur Heilbrigðiseftirlit Austurlands sinnt því eftirliti með prýði og án athugasemda frá Umhverfisstofnun. Ráðuneytið er fylgjandi því í samræmi við meginreglu laga nr. 7/1998, sbr. 13. gr. þeirra, að heilbrigðisnefndir sjái um að framfylgt sé ákvæðum laganna og reglugerða settum samkvæmt þeim, sækist nefndirnar eftir því og hafi þær yfir að ráða sérhæfðu starfsfólki til þess að sinna slíku eftirliti. Ráðuneytið metur málið svo að Heilbrigðiseftirlit Austurlands eigi að vera í stakk búið til þess að taka að sér tiltekið eftirlit, ekki síst með olíubirgðastöðvum og fiskeldi, enda er eftirlitið öflugt og hefur yfir að ráða sérhæfðu starfsfólki.
Ráðuneytið hefur verið í sambandi við Umhverfisstofnun vegna þessa en lögum samkvæmt er það Umhverfisstofnun sem gerir samninginn en umhverfisráðuneytisins síðan að staðfesta hann. Nýlega ítrekaði ráðuneytið við Umhverfisstofnun að gera eigi samning um þetta eftirlit milli Umhverfisstofnunar og Heilbrigðiseftirlits Austurlands og hefur stofnunin óskað eftir viðræðum við ráðuneytið um málið. Ráðuneytið hefur þannig fylgt málinu eftir og væntir þess að niðurstöður fáist fljótlega.
Eins og áður kom fram heimila lög ekki að þvingunarúrræði Umhverfisstofnunar séu falin öðrum þó að eftirlitið framselt sé samkvæmt samningi. Eigi að breyta því þarf að koma til lagabreyting.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1176 — 688. mál.
Svar