Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 754. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1234  —  754. mál.




Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Ástu Möller um greiningar- og ráðgjafarstöðvar.

     1.      Hvernig skiptist búseta barna á biðlista eftir þjónustu Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins eftir kjördæmum?
    Í skráningarkerfi Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins er skráð auðkenni sveitarfélags hvers barns eins og það er í þjóðskrá. Skipting barna á biðlista samkvæmt því er sem hér segir:
     –      Búsett í Reykjavík eru 116 börn.
     –      Búsett í Kópavogi, Garðabæ, á Seltjarnarnesi, í Hafnarfirði, Kjósarsýslu, Sveitarfélaginu Álftanesi, Mosfellsbæ og Kjósarhreppi eru 56 börn.
     –      Búsett í Reykjanesbæ, Grindavíkurbæ, Gullbringusýslu, Sandgerði, Gerðahreppi og Vatnsleysustrandarhreppi eru 16 börn.
     –      Búsett á Vesturlandi eru 14 börn.
     –      Búsett á Vestfjörðum eru 8 börn.
     –      Búsett á Norðurlandi vestra eru 8 börn.
     –      Búsett á Norðurlandi eystra eru 14 börn.
     –      Búsett á Austfjörðum eru 12 börn.
     –      Búsett á Suðurlandi eru 25 börn.

     –      Telur ráðherra vera grundvöll fyrir stofnun greiningar- og ráðgjafarstöðvar til að þjónusta fötluð börn og fjölskyldur þeirra á landsbyggðinni, t.d. Akureyri?
    Á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins eru unnin mjög sérhæfð störf. Þangað er börnum vísað með ýmiss konar þroskaraskanir og fötlun til frekari greiningar og sérhæfðrar ráðgjafar um eðli fötlunarinnar, framtíðarhorfur og helstu leiðir til íhlutunar í þeim tilgangi að draga úr áhrifum fötlunarinnar á líf barnsins og fjölskyldunnar í nútíð og framtíð. Á stofnuninni starfa hátt í 40 sérfræðingar og er stór hluti þeirra með framhaldsmenntun og sérfræðiviðurkenningu á sviði fötlunar.
    Áður en barni er vísað á Greiningar- og ráðgjafarstöðina hefur farið fram frumgreining á heimaslóðum barnsins. Aðeins þegar frumgreining hefur bent til alvarlegrar röskunar til framtíðar fær barnið tilvísun á Greiningar- og ráðgjafarstöðina. Af þessu leiðir að umtalsvert starf við greiningu og ráðgjöf barna með þroskaraskanir fer þegar fram á landsbyggðinni og aðeins hluta barnanna er vísað áfram til frekari þjónustu á Greiningar- og ráðgjafarstöðinni.
    Þegar skoðaður er sá fjöldi sem vísað er á stofnunina að lokinni frumgreiningu frá hinum ýmsu landsvæðum á hverju ári kemur eftirfarandi í ljós, miðað við meðalfjölda tilvísana síðustu sex árin:
     –      Frá Reykjavík var 84 börnum vísað árlega.
     –      Frá nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur var 45 börnum vísað árlega.
     –      Frá Reykjanesi var 20 börnum vísað árlega.
     –      Frá Vesturlandi var 11 börnum vísað árlega.
     –      Frá Vestfjörðum var 4 börnum vísað árlega.
     –      Frá Norðurlandi vestra var 5 börnum vísað árlega.
     –      Frá Norðurlandi eystra var 19 börnum vísað árlega.
     –      Frá Austfjörðum var 8 börnum vísað árlega.
     –      Af Suðurlandi var 22 börnum vísað árlega.
    Þegar reiknaður er út fjöldi tilvísana frá hverju svæði, miðað við hverja þúsund íbúa, kemur í ljós nokkuð jöfn dreifing yfir landið eða um eitt barn á hverja þúsund íbúa, að öðru leyti en því að hlutfallið er nokkuð lægra fyrir Norðurland vestra, þ.e. 0,67 á hverja þúsund íbúa, og Norðurland eystra, 0,74 á hverja þúsund íbúa.
    Samanlagður meðalfjöldi tilvísana þessi ár frá Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum er 36 börn á ári eða 17% af heildartilvísunum. Innan þessa 36 barna hóps eru börn með mismunandi fötlun og þar með mismunandi þarfir fyrir sérfræðiþekkingu.
    Stór hluti þeirrar fötlunar sem Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins fæst við eru sjaldgæf tilfelli þannig að oft eru fá börn með ákveðna fötlun á hverjum tíma, jafnvel þegar horft er til alls landsins. Á sama tíma er þekking á eðli og meðferð mismunandi fötlunar á alþjóðavettvangi sífellt að aukast. Það er því ekki við því að búast að unnt verði að koma upp nægri alhliða þekkingu á fötlun nema með því að hafa öfluga landsstofnun sem sé í stakk búin að fylgjast með framförum á sínu sviði á alþjóðavettvangi og tryggja að fötluð börn á Íslandi fái notið bestu umönnunar hverju sinni.
    Á grundvelli framangreindra upplýsinga verður að telja að ekki sé þörf fyrir aðra greiningar- og ráðgjafarstöð á landsbyggðinni. Hins vegar er stefnt að því að fella starfsemi Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins að heildarþjónustu við börn með þroskaraskanir um allt land. Með því verða betri forsendur fyrir nánara samstarfi stöðvarinnar við greiningar- og ráðgjafarteymi á landsbyggðinni. Þannig geti greiningar- og ráðgjafarteymi á landsbyggðinni með stuðningi Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins sinnt sérhæfðari verkefnum en þau gera í dag.