Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 794. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1238 — 794. mál.
um breytingu á lögum um Póst- og fjarskiptastofnun, nr. 69/2003.
Fyrstu ákvæði um úrskurðarnefndina voru sett með lögum nr. 147/1996, um Póst- og fjarskiptastofnun. Með þeim lögum varð Póst- og fjarskiptastofnun sjálfstæð og óháð ráðuneytinu í daglegum störfum sínum þrátt fyrir að hún heyrði undir það stjórnskipulega. Kveðið er á um að stjórnsýsluákvarðanir stofnunarinnar yrðu ekki kærðar til ráðuneytisins heldur til sérstakrar úrskurðarnefndar, til endanlegrar úrlausnar á stjórnsýslustigi. Höfð var hliðsjón af sérstakri áfrýjunarnefnd um samkeppnismál en lögð var áhersla á sjálfstæði nefndarinnar gagnvart stjórnvöldum (ráðherra), sbr. almennar athugasemdir í frumvarpi til laga um Póst- og fjarskiptastofnun (149. mál 121. löggjafarþings) og athugasemdir við 10. gr. frumvarps til laga um Póst- og fjarskiptastofnun (240. mál 125. löggjafarþings).
Úrskurðarnefndin starfar nú skv. 13. gr. laga um Póst- og fjarskiptastofnun, nr. 69/2003, sem tóku gildi 25. júlí 2003. Áður starfaði hún samkvæmt heimild í 10. gr. laga nr. 110/1999 og, eins og áður sagði, í upphafi skv. 8. gr. laga 147/1996, um sama efni. Samkvæmt núgildandi lögum verða ákvarðanir Póst- og fjarskiptastofnunar kærðar til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála. Úrskurðir nefndarinnar eru endanlegir á stjórnsýslustigi en þeim má síðan skjóta til dómstóla. Óheimilt er að bera ákvarðanir Póst- og fjarskiptastofnunar undir dómstóla fyrr en niðurstaða úrskurðarnefndarinnar liggur fyrir.
Þegar ákvæðin um úrskurðarnefndina voru fyrst sett 1996 var megintilgangurinn að tryggja sjálfstæði úrskurðaraðilans gagnvart stjórnvöldum sem voru og eru stærsti eignaraðilinn að hlutabréfum í Landssímanum hf. Eignarhaldið er enn að mestu í höndum stjórnvalda en hefur nú verið fært frá samgönguráðuneyti til fjármálaráðuneytis. Stefnt er að sölu fyrirtækisins síðar á þessu ári. Ljóst er að ekki eru jafnríkar ástæður til sérstakrar sjálfstæðrar úrskurðarnefndar við þær aðstæður. Í gildistökuákvæðinu er gert ráð fyrir að ákvæði taki gildi 1. janúar 2006 en miðað er við að eignarhaldið verði þá ekki lengur í höndum stjórnvalda.
Úrskurðarnefnd póst- og fjarskiptamála hefur, eins og áður segir, starfað í átta ár. Á síðustu þremur árum hefur hún kveðið upp samtals tólf úrskurði. Ef miðað er við hvernig aðilar málanna hafa unað úrskurðunum er reynslan góð af starfi nefndarinnar, en ráðuneytinu er ekki kunnugt um að neinn þeirra hafi farið fyrir almenna dómstóla. Aftur á móti er ráðuneytið reiðubúið til að axla sjálft ábyrgð á úrlausn ágreiningsefna á þessu sérsviði og mundi með því byggjast upp innan ráðuneytisins frekari þekking en nú er á póst- og fjarskiptamálum. Úrskurðarnefnd hefur ekki með höndum hlutverk við almenna stefnumörkun og hefur ekki stöðu til að fylgja með þeim hætti úrskurðum sínum eftir.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Verði frumvarpið óbreytt að lögum verður ekki séð að það hafi aukinn kostnað í för með sér fyrir ríkissjóð.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1238 — 794. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um Póst- og fjarskiptastofnun, nr. 69/2003.
(Lagt fyrir Alþingi á 131. löggjafarþingi 2004–2005.)
1. gr.
Stjórnsýslukæra og frestir.
2. gr.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
I. Inngangur.
Fyrstu ákvæði um úrskurðarnefndina voru sett með lögum nr. 147/1996, um Póst- og fjarskiptastofnun. Með þeim lögum varð Póst- og fjarskiptastofnun sjálfstæð og óháð ráðuneytinu í daglegum störfum sínum þrátt fyrir að hún heyrði undir það stjórnskipulega. Kveðið er á um að stjórnsýsluákvarðanir stofnunarinnar yrðu ekki kærðar til ráðuneytisins heldur til sérstakrar úrskurðarnefndar, til endanlegrar úrlausnar á stjórnsýslustigi. Höfð var hliðsjón af sérstakri áfrýjunarnefnd um samkeppnismál en lögð var áhersla á sjálfstæði nefndarinnar gagnvart stjórnvöldum (ráðherra), sbr. almennar athugasemdir í frumvarpi til laga um Póst- og fjarskiptastofnun (149. mál 121. löggjafarþings) og athugasemdir við 10. gr. frumvarps til laga um Póst- og fjarskiptastofnun (240. mál 125. löggjafarþings).
Úrskurðarnefndin starfar nú skv. 13. gr. laga um Póst- og fjarskiptastofnun, nr. 69/2003, sem tóku gildi 25. júlí 2003. Áður starfaði hún samkvæmt heimild í 10. gr. laga nr. 110/1999 og, eins og áður sagði, í upphafi skv. 8. gr. laga 147/1996, um sama efni. Samkvæmt núgildandi lögum verða ákvarðanir Póst- og fjarskiptastofnunar kærðar til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála. Úrskurðir nefndarinnar eru endanlegir á stjórnsýslustigi en þeim má síðan skjóta til dómstóla. Óheimilt er að bera ákvarðanir Póst- og fjarskiptastofnunar undir dómstóla fyrr en niðurstaða úrskurðarnefndarinnar liggur fyrir.
Þegar ákvæðin um úrskurðarnefndina voru fyrst sett 1996 var megintilgangurinn að tryggja sjálfstæði úrskurðaraðilans gagnvart stjórnvöldum sem voru og eru stærsti eignaraðilinn að hlutabréfum í Landssímanum hf. Eignarhaldið er enn að mestu í höndum stjórnvalda en hefur nú verið fært frá samgönguráðuneyti til fjármálaráðuneytis. Stefnt er að sölu fyrirtækisins síðar á þessu ári. Ljóst er að ekki eru jafnríkar ástæður til sérstakrar sjálfstæðrar úrskurðarnefndar við þær aðstæður. Í gildistökuákvæðinu er gert ráð fyrir að ákvæði taki gildi 1. janúar 2006 en miðað er við að eignarhaldið verði þá ekki lengur í höndum stjórnvalda.
II. Tvö stjórnsýslustig og ábyrgð á stefnumörkun.
Úrskurðarnefnd póst- og fjarskiptamála hefur, eins og áður segir, starfað í átta ár. Á síðustu þremur árum hefur hún kveðið upp samtals tólf úrskurði. Ef miðað er við hvernig aðilar málanna hafa unað úrskurðunum er reynslan góð af starfi nefndarinnar, en ráðuneytinu er ekki kunnugt um að neinn þeirra hafi farið fyrir almenna dómstóla. Aftur á móti er ráðuneytið reiðubúið til að axla sjálft ábyrgð á úrlausn ágreiningsefna á þessu sérsviði og mundi með því byggjast upp innan ráðuneytisins frekari þekking en nú er á póst- og fjarskiptamálum. Úrskurðarnefnd hefur ekki með höndum hlutverk við almenna stefnumörkun og hefur ekki stöðu til að fylgja með þeim hætti úrskurðum sínum eftir.
III. Framkvæmd í öðrum ríkjum.
IV. Kostnaður o.fl.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Um 2. gr.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum
um Póst- og fjarskiptastofnun, nr. 69/2003.