Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 795. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1239  —  795. mál.




Skýrsla



samgönguráðherra um störf rannsóknarnefndar flugslysa árið 2004.

(Lögð fyrir Alþingi á 131. löggjafarþingi 2004–2005.)



Rannsóknarnefnd flugslysa.
    Rannsóknarnefnd flugslysa tók til starfa 28. júní 1996 í samræmi við lög nr. 59/1996, um rannsókn flugslysa. Rannsóknarnefnd flugslysa tók þá við starfsemi flugslysarannsóknardeildar Flugmálastjórnar Íslands og starfsemi flugslysanefndar sem þá voru lagðar niður. Ný lög um rannsókn flugslysa, nr. 35/2004, tóku gildi 1. september 2004.
    Rannsóknarnefnd flugslysa er stjórnsýslunefnd sem heyrir stjórnsýslulega undir samgönguráðherra en starfar sjálfstætt og óháð stjórnvöldum og öðrum rannsóknaraðilum, ákæruvaldi og dómstólum. Nefndin lýtur forstöðu forstöðumanns sem samgönguráðherra skipar til fimm ára í senn og er hann ábyrgur fyrir rannsóknarverkefnum hennar og stjórnar daglegum rekstri nefndarinnar. Rannsóknarnefnd flugslysa annast rannsókn flugslysa, flugatvika og flugumferðaratvika samkvæmt framangreindum lögum og alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að.
    Flugslysarannsóknir miða að því að koma í veg fyrir að flugslys endurtaki sig og að auka öryggi í flugi. Um rannsókn á meintri refsiverðri háttsemi í tengslum við flugslys fer samkvæmt lögum nr. 19/1991, um meðferð opinberra mála, og er slík rannsókn óháð rannsókn flugslysa.
    Í skýrslum rannsóknarnefndar flugslysa er gerð grein fyrir orsök eða líklegri orsök flugslyss auk þess sem þar eru, ef við á, gerðar tillögur um þær varúðarráðstafanir sem gera má til þess að afstýra frekari slysum af sömu eða líkum orsökum. Þá skal rannsóknarnefnd flugslysa gera tillögur um úrbætur í flugöryggismálum eftir því sem rannsókn á orsökum flugslysa gefur tilefni til. Skýrslum rannsóknarnefndar flugslysa skal ekki beitt sem sönnunargögnum í opinberum málum, enda er markmið flugslysarannsókna samkvæmt áðurnefndum lögum að greina orsakaþætti flugslysa í því skyni einu að koma í veg fyrir frekari flugslys. Tilgangurinn er ekki að draga fram sök eða ábyrgð.
    Nefndina skipa eftirtaldir: Geirþrúður Alfreðsdóttir, vélaverkfræðingur og flugstjóri, formaður, Ólafur Haraldsson hæstaréttarlögmaður og Ragnar Guðmundsson flugvélaverkfræðingur.
    Varamenn eru: Bryndís Lára Torfadóttir flugstjóri, Hörður Arilíusson flugumferðarstjóri og Páll Valdimarsson, prófessor í vélaverkfræði við Háskóla Íslands.
    Starfsmenn rannsóknarnefndar flugslysa eru: Þormóður Þormóðsson, B.S. í flugrekstrar- og tæknistjórnun, forstöðumaður/rannsóknarstjóri, og Þorkell Ágústsson, verkfræðingur M.Sc., aðstoðarforstöðumaður/aðstoðarrannsóknarstjóri.

Fjárheimildir og kostnaður.
    Fjárheimildir til starfsemi rannsóknarnefndar flugslysa voru á árinu 2004 samtals 24,7 millj. kr. og greinast þannig: Framlag í fjárlögum er 25,4 millj. kr. Frá dregst skuld frá fyrra ári sem var 0,7 millj. kr. Heildarkostnaður við starfsemina var 30,1 millj. kr. og því færast 5,4 millj. kr. sem skuld til næsta árs.
    Nokkur ófyrirséður kostnaður hlaust vegna rannsóknarverkefna á árinu 2004. Má þar helst nefna rannsókn á flugslysi TF-ARR í Sameinuðu arabísku furstadæmunum 7. nóvember 2004 og rannsókn á flugslysi TF-ELH á flugvellinum á Siglufirði 23. júní 2004.

Yfirlit yfir skráð og rannsökuð mál árið 2004.
    Á árinu 2004 lauk rannsóknarnefnd flugslysa gerð rannsóknarskýrslu í 10 málum sem ólokið var í upphafi ársins. Þá lauk nefndin 15 öðrum málum frá árinu 2003 með bókun.
    Árið 2004 skráði rannsóknarnefnd flugslysa 527 frávik í flugi íslenskra loftfara hérlendis og erlendis, svo og í flugi erlendra loftfara um íslenska lögsögu og um íslenska flugstjórnarsvæðið. Rannsóknarnefndin skoðaði 93 þessara frávika nánar og af þeim tók nefndin samtals 41 atvik, sem skilgreint var sem flugslys, flugumferðaratvik eða alvarleg flugatvik, til formlegrar meðferðar og rannsóknar.
    Ekkert banaslys varð í flugi skráðra íslenskra loftfara á árinu 2004.
    Í árslok átti rannsóknarnefnd flugslysa eftir að ljúka 36 málum frá árinu 2004 en rannsókn þeirra var langt komin og mun þeim að öllum líkindum verða lokið með rannsóknarskýrslum eða bókunum á árinu 2005.
    Rannsóknarnefnd flugslysa átti töluvert samstarf við erlenda rannsakendur vegna rannsóknarverkefna sinna. Nokkur atvik hentu erlendar flugvélar hér á landi á árinu og jafnframt aðstoðaði nefndin og tók þátt í rannsóknum erlendra rannsakenda á 13 atvikum er hentu íslensk-skráðar flugvélar erlendis. Fjórum þessara rannsókna var lokið á árinu en það voru rannsókn rannsóknarnefndar flugumferðaratvika í Bretlandi (UK Airprox Board) á flugumferðaratviki er B 737 flugvél Íslandsflugs hf. átti hlut að við Prestwick í Skotlandi 30. júlí 2003, rannsókn rannsóknarnefndar flugslysa í Portúgal á flugatviki B 757 flugvél Icelandair hf. við Faro í Portúgal 28. júlí 2003, rannsókn rannsóknarnefndar flugslysa í Danmörku (Havarikommissionen for Civil Luftfart) á alvarlegu flugatviki er henti B 757 flugvél Flugleiða hf. á Kastrup-flugvelli 28. júní 2001 og rannsókn rannsóknarnefndar flugumferðaratvika í Frakklandi (Commission Nationale de Securite de la Circulation Aerienne) á flugumferðaratviki er B 767 flugvél Air Atlanta hf. átti hlut að við París 1. ágúst 2003.
    Rannsóknarnefnd flugslysa gerði samtals 16 tillögur til úrbóta í flugöryggismálum í kjölfar rannsókna sem hún lauk á árinu 2004. Í nokkrum málanna voru að mati nefndarinnar ekki efni til þess að gera tillögur til úrbóta. Tillögum þessum var flestum beint til Flugmálastjórnar Íslands, en skv. 7. gr. laga nr. 59/1996, um rannsókn flugslysa, sbr. 10. gr. laga nr. 35/2004, er flugmálayfirvöldum skylt að sjá til þess að úrbótatillögur rannsóknarnefndar flugslysa séu teknar til formlegrar afgreiðslu.