Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 800. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1244  —  800. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um tilmæli fastanefndar Bernarsáttmálans.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



     1.      Hver voru tilmæli fastanefndar Bernarsáttmálans til íslensku ríkisstjórnarinnar í desember 2004?
     2.      Hefur verið brugðist við tilmælunum? Ef ekki, hvernig hyggst ríkisstjórnin bregðast við þeim?