Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 740. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1247 — 740. mál.
landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Rannveigar Guðmundsdóttur um hunda og sóttvarnir.
1. Hefur verið skoðað hvort óhætt sé að breyta sóttvarnalögum þannig að unnt verði að flytja hunda hingað til lands annars staðar að af Norðurlöndum án þess að þeir þurfi að fara í sex vikna sóttkví?
Í júlí 2001 var að beiðni landbúnaðarráðuneytisins settur á fót starfshópur á vegum embættis yfirdýralæknis til að gera áhættugreiningu á innflutningi á gæludýrum til Íslands með tilliti til sjúkdómavarna. Metin var áhætta vegna 54 þekktra sjúkdóma sem taldir eru geta borist til landsins með gæludýrum. Að mati hópsins var ekki talið tilefni til að fella niður kröfu um einangrun að fullu frá nokkru landi. Með reglugerð nr. 431/2003 (og breytingarreglugerð nr. 935/2004) um innflutning gæludýra og hundasæðis, sem landbúnaðarráðuneytið setti með stoð í lögum um innflutning dýra, nr. 54/1990, og byggðist að miklu leyti á niðurstöðum framangreinds áhættumats, var tíminn sem sóttkvíin skal standa hins vegar styttur úr sex til átta vikum í fjórar vikur fyrir öll gæludýr, sama hvaðan þau koma. Þetta byggðist m.a. á því að kröfur um bólusetningar, mótefnamælingar og prófanir voru hertar. Bent skal á að sóttvarnalög, nr. 19/1997, kveða ekki á um innflutning hunda og katta (sjá einnig svar við 2. spurningu).
2. Hvaða breytingar þyrfti að gera á sóttvarnalögum í þessu skyni?
Samkvæmt ákvæðum laga nr. 54/1990, um innflutning dýra, er óheimilt að flytja til landsins hvers konar dýr, tamin eða villt, svo og erfðaefni þeirra, en landbúnaðarráðherra getur að fengnum meðmælum yfirdýralæknis, vikið frá þessu banni, enda sé stranglega fylgt þeim fyrirmælum sem lögin kveða á um og reglugerða settra samkvæmt þeim. Einnig kveða lögin á um að einangra skuli öll dýr og erfðaefni á sóttvarnastöð svo lengi sem yfirdýralæknir telur þörf á (sjá svar við 1. spurningu). Þessum ákvæðum þyrfti að breyta ef undanskilja ætti einhver ákveðin lönd.
3. Eru íslensk lög og reglugerðir um hundahald og innflutning hunda ólík því sem gerist annars staðar á Norðurlöndum?
Íslensk lög og reglugerðir eru strangari en löggjöf annars staðar á Norðurlöndum. Þetta helgast m.a. af legu landsins og stöðu þekktra sjúkdóma í gæludýrum hér á landi. Annars staðar á Norðurlöndum að Noregi meðtöldum hafa löndin gert löggjöf ESB að sinni í þessum málaflokki, og verða því ekki aðskilin frá öðrum aðildarlöndum ESB. Þetta táknar í raun að allir hundar og kettir innan aðildarlanda ESB eru í tiltölulega frjálsu flæði milli allra hluta ESB, að því tilskildu að dýrin séu bólusett gegn hundaæði. Við innflutning hunda og katta hingað til lands eru gerðar mun strangari kröfur um bólusetningar, mótefnamælingar og meðhöndlun gegn sníkjudýrum en gerðar eru annars staðar á Norðurlöndum, í samræmi við niðurstöður áðurnefndrar áhættugreiningar á innflutningi á hundum og köttum til Íslands. Varðandi reglur um hundahald vísast til Umhverfisstofnunar og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaganna.
4. Eru gerðar aðrar kröfur hérlendis um heilbrigðisvottorð hunda en gerðar eru annars staðar á Norðurlöndum?
Hér á landi eru notuð séríslensk vottorð þar sem rakin eru öll þau sérstöku skilyrði er uppfylla þarf áður en heimilt er að flytja hundinn/köttinn hingað til lands til vistar í einangrun í fjórar vikur. Annars staðar á Norðurlöndum eru notuð stöðluð vottorð sem eru eins fyrir öll aðildarríki ESB. Noregur gefur hins vegar út sérstök vottorð.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1247 — 740. mál.
Svar