Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 67. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1274  —  67. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum (bann við limlestingu á kynfærum kvenna).

Frá allsherjarnefnd.



     1.      Við 1. gr. Greinin orðist svo:
                  Við 5. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                  Í þeim tilvikum sem greinir í 2. tölul. 1. mgr. skal refsað eftir íslenskum hegningarlögum fyrir brot manns, sem var íslenskur ríkisborgari eða búsettur hér á landi á verknaðarstundu, er fellur undir 218. gr. a og framið er erlendis þrátt fyrir að verknaðurinn teljist ekki refsiverður eftir lögum þess ríkis.
     2.      Við 3. gr. Greinin orðist svo:
                   Á eftir 218. gr. laganna kemur ný grein, 218. gr. a, svohljóðandi:
                  Hver sem með líkamsárás veldur tjóni á líkama eða heilsu stúlkubarns eða konu með því að fjarlægja kynfæri hennar að hluta eða öllu leyti skal sæta fangelsi allt að 6 árum. Nú hefur árás í för með sér stórfellt líkams- eða heilsutjón eða bani hlýst af, eða hún telst sérstaklega vítaverð vegna þeirrar aðferðar sem notuð er, og varðar brot þá fangelsi allt að 16 árum.
     3.      Á eftir 4. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
                  219. gr. laganna orðast svo:
                  Ef tjón á líkama eða heilbrigði, slíkt sem í 218. gr. eða 218. gr. a getur, hlýst af gáleysi annars manns, þá varðar það sektum eða fangelsi allt að 4 árum.