Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 587. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1321  —  587. mál.




Breytingartillaga



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 117/1993, um almannatryggingar, með síðari breytingum.

Frá Þuríði Backman.



    Við 1. gr. Greinin orðist svo:
    Eftirfarandi breytingar verða á 37. gr. laganna:
     a.      2. mgr. orðast svo:
                 Greiðslur sjúkratrygginga skv. 1. mgr. skulu vera sem hér segir:
                  1.      100%: Vegna þeirra sem eru eldri en 67 ára, eru langsjúkir og dveljast á sjúkrahúsum, hjúkrunarheimilum eða hjúkrunarrýmum á öldrunarstofnunum, sbr. nánari útfærslu í reglugerð ráðherra. Sama gildir um sjómenn 60 ára og eldri sem uppfylla framangreind skilyrði.
                  2.      100%: Vegna þeirra sem fengið hafa 75% örorkumat skv. 12. gr., eru langsjúkir og dveljast á sjúkrahúsum, hjúkrunarheimilum eða hjúkrunarrýmum á öldrunarstofnunum, sbr. nánari útfærslu í reglugerð ráðherra. Sama gildir um endurhæfingarlífeyrisþega sem uppfylla framangreind skilyrði.
                  3.      100%: Vegna barna og unglinga, yngri en 20 ára. Ekki er heimilt að taka þátt í kostnaði vegna gullfyllinga, króna, brúa eða annarrar sambærilegrar meðferðar, svo sem tannplanta.
                  4.      100%: Vegna elli- og örorkulífeyrisþega sem fá greidda tekjutryggingu frá Tryggingastofnun ríkisins, sbr. nánari útfærslu í reglugerð ráðherra.
                  5.      75%: Vegna öryrkja og þeirra sem eru 67 ára og eldri sem fá ekki greidda tekjutryggingu frá Tryggingastofnun ríkisins, sbr. nánari ákvæði í reglugerð ráðherra.
             Endurgreiðsluhlutfall vegna annarra þátta en almennra tannlækninga skal vera það sama en ráðherra skal útfæra það nánar í reglugerð.
     b.      3. og 4. mgr. falla brott.












Prentað upp.