Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 501. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1431 — 501. mál.
félagsmálaráðherra við fyrirspurn Hjördísar Þóru Sigurþórsdóttur um Ábyrgðasjóð launa.
1. Hver er afstaða ráðherra til þeirrar ákvörðunar stjórnar Ábyrgðasjóðs launa að ábyrgjast ekki desember- og orlofsuppbætur nema fyrir síðustu þrjá mánuði fyrir gjaldþrot fyrirtækis?
Ábyrgðasjóður launa ábyrgist greiðslu vinnulaunakröfu launafólks fyrir síðustu þrjá starfsmánuði í þjónustu vinnuveitanda, sbr. a-lið 5. gr. laga nr. 88/2003, um Ábyrgðasjóð launa. Í athugasemdum við a-lið 5. gr. frumvarps þess er varð að lögum nr. 88/2003 er tekið fram að desember- og orlofsuppbætur eru hluti af þessum vinnulaunakröfum. Þar kemur meðal annars fram að „við úrskurð um gjaldþrotaskipti á búi vinnuveitanda falla kröfur um desemberuppbót sem kveðið er á um í kjarasamningi í gjalddaga eins og aðrar launakröfur og njóta hlutfallslegrar ábyrgðar sem hluti af heildarlaunakröfu starfsmanns skv. a-lið 5. gr. frumvarpsins. Sama á við um kröfur launamanna vegna orlofsuppbótar. Njóta slíkar kröfur ábyrgðar sjóðsins sem hluti af launakröfu starfsmanns skv. a- og b-lið 5. gr. frumvarpsins.“ Desember- og orlofsuppbætur ákvarðast á grundvelli ákvæða kjarasamninga og miðast almennt við vinnuframlag launafólks hjá sama vinnuveitanda á einu almanaksári. Launafólk ávinnur sér rétt til þessara uppbóta allt árið. Verður því ekki annað ráðið en að það samræmist ákvæðum laganna að ábyrgð sjóðsins takmarkist við þær launagreiðslur sem hlutaðeigandi launamaður ávann sér rétt til þá mánuði sem tímabil ábyrgðar sjóðsins tekur til.
Ábyrgð Ábyrgðasjóðs launa takmarkast þannig við launagreiðslur er féllu til á síðustu þremur starfsmánuðum launamanns í þjónustu hins gjaldþrota vinnuveitanda lögum samkvæmt. Enn fremur miðast ábyrgð sjóðsins við tímabil sem tilgreint er í b-lið 5. gr. laganna og bætur fyrir launamissi eru greiddar vegna slita á ráðningarsamningi. Ábyrgist því sjóðurinn desember- og orlofsuppbætur á sama hátt og hann ábyrgist aðrar vinnulaunakröfur samkvæmt a- og b-liðum 5. gr. laga um Ábyrgðasjóð launa.
2. Telur ráðherra eðlilegt að sjóðurinn ábyrgist ekki iðgjöld í félags-, sjúkra-, orlofs- og starfsmenntasjóði stéttarfélaga líkt og önnur launatengd gjöld? Hyggst ráðherra beita sér fyrir breytingum á því fyrirkomulagi?
Markmið laga nr. 88/2003, um Ábyrgðasjóð launa, er að tryggja launamönnum og lífeyrissjóðum greiðslur vegna vangoldinna krafna þeirra við gjaldþrot vinnuveitenda, sbr. 1. gr. laganna. Kröfum sem njóta ábyrgðar sjóðsins er síðan lýst nánar í 5. gr. laganna. Þar eru taldar upp vinnulaunakröfur launamanns fyrir tiltekið tímabil, kröfur um bætur vegna launamissis vegna slita á ráðningarsamningi, kröfur um orlofslaun sem réttur hefur áunnist til á tilteknu tímabili, kröfur lífeyrissjóðs um lífeyrisiðgjöld, kröfur launamanns um bætur vegna tjóns af völdum vinnuslyss og kröfur þeirra sem tilkall eiga til bóta vegna dauðsfalls launamanns. Er ábyrgð sjóðsins þannig að meginstefnu takmörkuð við þær greiðslur úr hendi vinnuveitenda sem eru beint endurgjald fyrir vinnuframlag launamanna eða ætlaðar launamönnum eða þeim nákomnum til framfærslu á einhverjum tímapunkti í lífi þeirra. Þær greiðslur er reiknast sem ákveðið hlutfall launa eða eru ákveðnar sem tiltekin fjárhæð og vinnuveitanda ber að standa skil á til þriðja manns samkvæmt lögum eða kjarasamningi án þess að þeim sé beint ætlað að tryggja framfærslu launamannsins hafa ekki verið taldar hluti af hugtakinu „vinnulaun“ í skilningi laganna. Hefur svo ætíð verið frá því að ábyrgð á launakröfum í bú gjaldþrota vinnuveitanda var ákveðin með lögum. Yrði það því að teljast veruleg stefnubreyting frá því sem tíðkast hefur yrðu lagðar til breytingar á gildandi fyrirkomulagi þannig að ábyrgð sjóðsins næði til annars konar greiðslna. Verður ekki séð að skynsemisrök hnígi til slíkra breytinga heldur er þýðingarmikið að stefnt sé áfram að því að viðhalda því meginmarkmiði sjóðsins að tryggja eins og frekast er unnt að launafólk fái endurgjald fyrir vinnuframlag sitt bætt, sem og þær greiðslur sem ætlaðar eru því til framfærslu síðar á ævinni.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1431 — 501. mál.
Svar