Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 778. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1433 — 778. mál.
samgönguráðherra við fyrirspurn Láru Stefánsdóttur um skráningu og eignarhald léna.
1. Stendur til að setja lög um skráningu og eignarhald léna?
Samkvæmt 3. gr. laga um Póst- og fjarskiptastofnun, PFS, nr. 69/2003, er eitt af verkefnum stofnunarinnar að ýta undir hagnýta notkun tíðna og númera og viðhafa skilvirka stjórn á notkun þessara gæða. Í lögum um fjarskipti, nr. 81/2003, er í 7., 10., 11., 12. og 15. gr. fjallað um skyldur PFS og meðhöndlun umsókna um númer. Í síðasttöldu greininni segir að PFS skuli setja reglur um númer, númeraraðir og vistföng. Í sömu grein segir að samgönguráðherra geti sett reglugerð um hlutverk PFS við útgáfu vistfanga.
Um númer, nöfn og vistföng er einnig fjallað í rammatilskipun ESB, 2002/21/EB. Í 20. inngangslið er tekið fram að ákvæði tilskipunarinnar feli eftirlitsstofnunum engin ný verkefni á sviði úthlutunar nafna og vistfanga í internetinu. Það hefur þó verið bent á að 8. gr. tilskipunarinnar kunni í einhverjum tilfellum að réttlæta afskipti eftirlitsstofnana af þessum málum af samkeppnisástæðum.
Stjórnvöld hafa þegar heimild til að setja reglur um úthlutun léna þó að sú heimild hafi ekki verið nýtt og eins og er. Þó svo að lagasetning sé ekki á dagskrá er ekki útilokað að þörf gæti orðið fyrir hana í framtíðinni.
2. Hyggst ráðherra beita sér fyrir lagasetningu um það hvernig skuli bregðast við þegar nöfn léna valda misskilningi eða vandræðum?
Ef um er að ræða ,,misskilning eða ,,vandræði sem leiðir af reglum um höfundarrétt eða vörumerkjarétt eða brotum á samkeppnislöggjöfinni, þá er þegar í gildi löggjöf á þessum sviðum sem taka á slíkum vandkvæðum. Þegar hefur reynt á ágreining af þessu tagi, t.d. fyrir samkeppnisyfirvöldum.
Hér á landi er úthlutun léna í höndum Internet á Íslandi hf. (ISNIC), en fyrirtækið sér um skráningu og úthlutun nafna undir landsléninu „.is“. Fyrirtækið er í eigu um 20 fyrirtækja og einstaklinga. Lengst af hefur verið sátt um starfsemi fyrirtækisins þó að það hafi verið gagnrýnt á undanförnum vikum vegna upptöku léna með séríslenskum stöfunum.
Ákveðið var að taka upp íslenska stafi í lénanöfnum 1. júlí 2004 með sex mánaða aðlögun eða forgangstíma fyrir rétthafa eldri léna, þ.e. léna sem eru skráð með ensku stafasetti (án íslenskra sérstafa). Eftir þau tímamót var stuðst við meginregluna fyrstur kemur fyrstur fær.
Gagnrýnin hefur aðallega beinst að tveimur atriðum, þ.e. að rétthafar eldri léna, þ.e. án íslenskra stafa, þurfi að tryggja sér lénanöfnin að nýju, rétt skrifuð á íslensku. Hins vegar að,,eldri rétthafar þurfi að greiða fyrir þessi lén (að nýju). ISNIC veitir nú 50% afslátt af skráningu léna með íslensku stöfunum. Hafa verður í huga að ekki er hægt að nýta ,,íslensku lénin enn sem komið er þar sem vafrar lesa þau ekki og fyrirsjáanlegt er að nokkur ár geti liðið áður en póstþjónar geta þjónað aðila með ,,íslenskum stöfum (sama gildir reyndar um alla sérþjóðlega stafi).
Þessi mál hafa verið í sérstakri skoðum hjá samgönguráðuneytinu og hjá Póst- og fjarskiptastofnun. Fundað hefur verið með ISNIC um þessi mál og leitað er leiða til að sætta ólík sjónarmið og koma til móts við gagnrýnina vegna úthlutana á lénum með íslensku stöfunum. Ef ekki takast sættir um þessi mál munu stjórnvöld huga að reglugerðarsetningu.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1433 — 778. mál.
Svar