Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 803. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1455  —  803. mál.




Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Valdimars L. Friðrikssonar um leyfi til að starfrækja sumardvalarheimili fyrir fatlaða.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Þurfa þeir sem starfrækja sumardvalarheimili fyrir fatlaða að sækja um leyfi fyrir rekstrinum? Ef svo er, hvert? Ef svo er ekki, hyggst ráðherra beita sér fyrir því?

Sumardvalarheimili ætluð jafnt fötluðum og ófötluðum börnum.
    Vilji er til að fötluð börn fái að njóta sömu tækifæra varðandi sumardvalarheimili og ófötluð börn þannig að um blöndun fatlaðra og ófatlaðra barna geti verið að ræða sé þess kostur.
    Um leyfisveitingar og eftirlit með sumardvöl barna þar sem fötluð og ófötluð börn dvelja samkvæmt barnaverndarlögum, nr. 80/2002, gildir reglugerð um vistun barna á vegum annarra en barnaverndarnefnda samkvæmt ákvæðum barnaverndarlaga (sumarbúðir o.fl.), nr. 366/2005. Reglugerð þessi var endurskoðuð fyrr á þessu ári. Í reglugerðinni er að finna skilgreiningar og ýmsar almennar kröfur til rekstraraðila. Þá er gerð grein fyrir framkvæmd leyfisveitinga.
    Barnaverndarnefndir viðkomandi sveitarfélaga veita starfsleyfi til sumardvalar á einkaheimilum en með sumardvöl er átt við dvöl á einkaheimili gegn gjaldi í allt að þrjá mánuði yfir sumartíma. Í f-lið 14. gr. er óskað eftir upplýsingum umsækjanda um hvort hugmyndin sé að sinna einnig börnum með sérþarfir, svo sem fötluðum börnum.
    Barnaverndarstofa veitir starfsleyfi til annarra heimila en með því er átt við önnur heimili sem félagasamtök eða aðrir aðilar fá leyfi til að setja á laggirnar til að taka á móti börnum til sólarhringsdvalar til umönnunar, stuðnings, afþreyingar eða hollra tómstunda. Hér undir falla staðir þar sem fram fer saman eða hvort í sínu lagi meðferð, tómstundastarf, námskeiðahald eða önnur óskilgreind umönnun, svo sem sumarbúðir, reiðskólar og neyðarathvörf. Í g-lið 21. gr. er óskað eftir upplýsingum umsækjanda um hvort hugmyndin sé að sinna einnig börnum með sérþarfir, svo sem fötluðum börnum, og í 3. mgr. 23. gr. kemur fram að við ákvörðun um fjölda starfsmanna skal einkum tekið mið af aldri barna og þörfum þeirra (þ.m.t. sérþörfum barna eða þarfa fatlaðra barna).

Sumardvalarheimili sem eru eingöngu ætluð fötluðum einstaklingum.
    Um sumardvöl fatlaðra barna er fjallað í 23. gr. laga um málefni fatlaðra, nr. 59/1992, með síðari breytingum, og 20. gr. reglugerðar um þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur fatlaðra, nr. 155/1995, með síðari breytingum.
    Í 23. gr. laga um málefni fatlaðra, nr. 59/1992, er kveðið á um sumardvöl fatlaðra barna. Greinin er svohljóðandi:
    „Stuðla skal að því að fötluð börn eigi kost á sumardvöl þegar þörf er á. Sumardvöl er ætlað að gefa fötluðum kost á að skipta um umhverfi og dveljast utan heimilis síns sér til ánægju og tilbreytingar.“
    Efni 20. gr. reglugerðar um þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur fatlaðra, nr. 155/1995, er svohljóðandi:
    „Fötluð börn skulu eiga aðgang að sumardvöl, sem rekin er af sveitarfélögum, félagasamtökum eða einstaklingum, með sama hætti og önnur börn.
    Heimilt er ríkissjóði að greiða framlag vegna þess umframkostnaðar sem þjónusta við fötluð börn hefur í för með sér enda hafi verið gert ráð fyrir þeim útgjöldum í áætlunum svæðisskrifstofa.
    Kostnaður vegna ferða til og frá sumardvöl greiðist af þeim sem þjónustunnar nýtur.“
    Ekki er veitt sérstakt starfsleyfi til starfrækslu sumardvalarheimilis fyrir fatlaða. Í því sambandi skiptir ekki máli hvort um fötluð börn eða fullorðna er að ræða. Um starfsemi sumardvalarheimilis fyrir fatlaða gilda þó almennar kröfur til slíkrar starfsemi, svo sem:
     –      Starfsleyfi heilbrigðisnefndar sveitarfélags í samræmi við reglugerð um hollustuhætti.
     –      Skoðun eldvarnaeftirlits á brunavörnum á sumardvalarheimilinu og vottun um að brunavarnir séu fullnægjandi.
     –      Leyfi byggingarnefndar ef um nýtt húsnæði eða breytta notkun húsnæðisins er að ræða.
    Æskilegt er að komið verði upp virku eftirliti með starfsemi einkaaðila og félagasamtaka þar sem fötluðum einstaklingum er boðið upp á dvöl yfir sumartímann. Ráðherra telur rétt að taka starfsleyfi fyrir sumardvöl fatlaðra til sérstakrar athugunar við fyrirhugaða endurskoðun á lögum um málefni fatlaðra. Undirbúningur að heildarendurskoðun á lögum um málefni fatlaðra í ráðuneytinu er þegar hafinn.