Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 78. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 78  —  78. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á barnalögum, nr. 76/2003.

Flm.: Ásta R. Jóhannesdóttir, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Ágúst Ólafur Ágústsson,


Katrín Júlíusdóttir, Helgi Hjörvar, Jóhanna Sigurðardóttir, Jón Gunnarsson,
Margrét Frímannsdóttir, Össur Skarphéðinsson.


1. gr.

    Í stað orðanna „sbr. þó 3. mgr. 31. gr.“ í 1. mgr. 29. gr. laganna kemur: sbr. þó 2. mgr. 31. gr.

2. gr.

    Í stað 1. og 2. mgr. 31. gr. laganna kemur ein ný málsgrein, svohljóðandi:
    Við skilnað foreldra að borði og sæng og við lögskilnað, svo og við slit sambúðar foreldra sem skráð hefur verið í þjóðskrá, skulu þeir ákveða með samningi hvar barn skuli eiga lögheimili og þar með að jafnaði hafa fasta búsetu. Ef eigi er um annað samið fara foreldrar sameiginlega með forsjá barns. Ákvæði 5. mgr. 32. gr. á við um samninga samkvæmt þessari málsgrein.

3. gr.

    Í stað orðanna „samningur um sameiginlega forsjá“ í 2. mgr. 32. gr. laganna kemur: sameiginleg forsjá.

4. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Frumvarp sama efnis var lagt fram á 128. löggjafarþingi (31. mál) til breytingar á þágildandi barnalögum, nr. 20/1992, en varð þá ekki útrætt. Með frumvarpinu var lagt til að sameiginleg forsjá yrði meginregla við skilnað foreldra og sambúðarslit. 1. nóvember 2003 tóku gildi ný barnalög, nr. 76/2003, án þess að nokkrar efnisbreytingar væru gerðar á þessu atriði, þ.e. meginregla nýju laganna er enn sem fyrr sú að forsenda sameiginlegrar forsjár við skilnað og sambúðarslit er ætíð samkomulag foreldra.
    Í greinargerð sem fylgdi eldra frumvarpi sagði m.a.:
    „Hinn 1. júlí 1992 voru í fyrsta sinn lögtekin hér á landi ákvæði sem heimila foreldrum sem ekki eru í samvist að fara sameiginlega með forsjá barna sinna. Heimild þessi er bundin því skilyrði að foreldrar séu sammála um þessa skipan mála og er staðfesting sýslumanns skilyrði fyrir gildi slíks samkomulags. Í samningi foreldra verður einnig að ákveða hjá hvoru þeirra barnið skuli hafa lögheimili og þar með að jafnaði fasta búsetu. Eins og reglurnar eru uppbyggðar er miðað við að það foreldri sem barnið hefur lögheimili hjá hafi réttarstöðu einstæðs foreldris. Í því felst réttur til að taka við meðlagsgreiðslum úr hendi hins foreldrisins, réttur til barnabóta og réttur til bóta samkvæmt lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð.
    Nokkrar umræður hafa orðið um hvort rétt sé að breyta þessu fyrirkomulagi með þeim hætti að sameiginleg forsjá verði meginregla við hjónaskilnaði og sambúðarslit. Í júní 1999 skilaði forsjárnefnd, skipuð af dómsmálaráðherra, af sér áfangaskýrslu þar sem m.a. er fjallað um reynsluna af sameiginlegri forsjá hér á landi og annars staðar á Norðurlöndum. Kemur þar m.a. fram að bæði í Finnlandi og Svíþjóð hafi sameiginleg forsjá verið gerð að meginreglu við hjónaskilnað foreldra og er það niðurstaða nefndarinnar að rétt sé að feta í fótspor þeirra.
    Ein meginröksemd forsjárnefndar fyrir sameiginlegri forsjá sem meginreglu er sú að slíkt fyrirkomulag samrýmist best 1. mgr. 18. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins sem Ísland hefur fullgilt.
    1. mgr. 18. gr. samningsins hljóðar svo:
    „Aðildarríki skulu gera það sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að sú meginregla sé virt að foreldrar beri sameiginlega ábyrgð á að ala upp barn og koma því til þroska. Foreldrar eða lögráðamenn, ef við á, bera aðalábyrgð á uppeldi barns og því að barni sé komið til þroska. Það sem barninu er fyrir bestu skal vera þeim efst í huga.“
    Flutningsmenn þessa frumvarps taka undir þessa röksemd og telja að með því að gera sameiginlega forsjá að meginreglu eins og hér er lagt til sé íslenska ríkið að gera það sem í þess valdi stendur til að tryggja sameiginlega ábyrgð foreldra á uppeldi barna sinna. Réttur foreldris til að fara með forsjá barns síns er réttlætismál og á sama hátt er það réttlætismál fyrir barnið að njóta forsjár þess þótt foreldri geti vissulega fyrirgert þessum rétti sínum með því að bregðast skyldum sínum. Löggjafanum ber því að stuðla að því að réttur beggja foreldra sé tryggður svo sem framast er unnt. Réttur foreldris til að fara með forsjá barns síns er jafnframt tilfinningamál. Það skiptir máli fyrir foreldri tilfinningalega að hafa eitthvað að segja um framtíð barns síns. Sameiginleg forsjá tryggir rétt beggja foreldra hvað þetta varðar, að því marki sem unnt er. Þá má ætla að sameiginleg forsjá sé til þess fallin að efla ábyrgðarkennd foreldra gagnvart barni og hvetja þá til að ná samkomulagi um ráðstafanir sem varða hagsmuni þess.“
    Við endurskoðun barnalaga, sem lyktaði með setningu nýrra barnalaga, nr. 76/2003, var fyrrnefnd tillaga forsjárnefndar rædd en komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri ástæða til að hverfa frá ríkjandi skipan þessara mála. Flutningsmenn benda á að forsjárnefnd skilaði í mars 2005 lokaskýrslu til dómsmálaráðherra þar sem hún ítrekar fyrri tillögu sína um að sameiginleg forsjá verði meginreglan við skilnað og sambúðarslit foreldra. Sú niðurstaða undirstrikar enn frekar mikilvægi þess að ráðist verði í lagabreytingu hið fyrsta. Með frumvarpi þessu er því lagt til að við hjónaskilnað eða sambúðarslit foreldra fari þeir áfram sameiginlega með forsjá barna sinna nema um annað sé samið. Foreldrar verða þó að ná samkomulagi um það hvar barnið skuli eiga lögheimili og þar með að jafnaði hafa fasta búsetu.
    Grundvöllur sameiginlegrar forsjár samkvæmt gildandi lögum er að foreldrar séu sammála um þá skipan mála. Það mun í raun ekki breytast verði frumvarp þetta að lögum. Foreldrar þurfa, eins og áður sagði, að ná samkomulagi um það hvar barnið skuli eiga lögheimili með þeim réttaráhrifum sem því fylgir. Náist ekki samkomulag um þetta er grundvöllur sameiginlegrar forsjár brostinn og verður þá að ákvarða hvort foreldrið skuli fara með forsjá barnsins eftir þeim leiðum sem lögin gera ráð fyrir. Þannig mun sameiginleg forsjá eftir sem áður byggjast á samkomulagi. Breytingin hefur þannig ekki síst huglæga þýðingu þar sem löggjafinn sendir þau skilaboð að sameiginleg forsjá sé sú skipan mála sem þjóni hagsmunum barns og beggja foreldra best, sé hún á annað borð möguleg.
    Samkvæmt 2. mgr. 29. gr. laganna fer móðir ein með forsjá barns ef foreldrar eru hvorki í hjúskap né skráðri sambúð við fæðingu þess. Ekki er lögð til breyting á þessu fyrirkomulagi enda aðstæður í slíkum tilvikum oft aðrar en við skilnað eða sambúðarslit foreldra.