Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 92. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 92  —  92. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um viðbúnaðaráætlun vegna fuglaflensu.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Hvernig eru Íslendingar í stakk búnir til að verjast fuglaflensu? Hefur verið gerð samræmd viðbúnaðaráætlun á vegum íslenskra heilbrigðisyfirvalda og annarra þar til bærra yfirvalda til að mæta hugsanlegum faraldri? Ef svo er, í hverju er hún fólgin?
     2.      Hefur borist beiðni til stjórnvalda frá heilbrigðisyfirvöldum um fjármagn til fyrirbyggjandi aðgerða gegn fuglaflensu og hversu miklu fé hefur verið varið eða verður varið til forvarna?