Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 98. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 98  —  98. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um rannsóknir og sjómælingar innan efnahagslögsögunnar.

Frá Guðmundi Hallvarðssyni.



    Hvernig hefur verið framfylgt ályktun Alþingis frá 14. maí 1997 um að efla rannsóknir og sjómælingar við landið, með sérstakri áherslu á hafsvæðið innan 200 sjómílna efnahagslögsögunnar fyrir sunnan landgrunn Íslands frá Reykjanesshrygg að Færeyjahrygg?


Skriflegt svar óskast.