Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 119. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Prentað upp.

Þskj. 119  —  119. mál.
Skriflegt svar.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um tekjur ríkissjóðs af stimpilgjöldum.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



     1.      Hverjar eru heildartekjur ríkissjóðs af stimpilgjöldum árin 2003, 2004 og það sem af er árinu 2005 vegna fasteignaviðskipta?
     2.      Hve stór hluti þessara tekna er vegna endurfjármögnunar lána vegna fasteignakaupa?


Skriflegt svar óskast.