Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 124. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 124 — 124. mál.
til fjármálaráðherra um frestun á skattlagningu söluhagnaðar af hlutabréfum og um skattlagningu vaxta til erlendra aðila.
1. Hver er afstaða ráðherra til þess að endurskoðuð verði heimild til frestunar á skattlagningu söluhagnaðar af hlutabréfum með það fyrir augum að koma í veg fyrir flutning á óskattlögðum söluhagnaði í erlend hlutabréf og hlutabréf í eigu einkahlutafélaga, sbr. skýrslu skattsvikanefndar frá desember 2004? Er samsvarandi ákvæði um frestun á skattlagningu söluhagnaðar af hlutabréfum að finna í öðrum löndum?
2. Hvaða áhrif hefði það á tekjur ríkissjóðs og stöðu fyrirtækja ef óheimilt yrði að flytja óskattlagðan söluhagnað í erlend hlutabréf og hlutabréf í eigu einkahlutafélags?
3. Er hægt að áætla hvaða áhrif það hefur á skatttekjur ríkissjóðs að Ísland skuli ekki leggja skatt á vexti sem greiddir eru úr landi og hvaða áhrif það hefur á skattasniðgöngu og ósamræmi í skattlagningu vaxta hér á landi?
4. Hefur verið kannað hvort sparnaðartilskipun ESB (Council Directive 2003/48/EC) tekur einnig til Íslands sem EES-ríkis og hvort skylt sé að innleiða hana hér á landi? Kemur til álita að taka upp hliðstæðar reglur hér á landi?
Skriflegt svar óskast.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 124 — 124. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um frestun á skattlagningu söluhagnaðar af hlutabréfum og um skattlagningu vaxta til erlendra aðila.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.