Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 126. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 126  —  126. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um saksókn og ákæruvald í skattamálum.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Hve mörg mál hafa borist yfirskattanefnd árlega á síðastliðnum þremur árum og hver er meðalafgreiðslutími til lúkningar málum?
     2.      Hve mörg mál hafa árlega á síðastliðnum þremur árum sætt skattrannsókn og hversu mörg þeirra hafa farið til lögreglurannsóknar?
     3.      Hve oft hafa mál sem kærð hafa verið vegna ætlaðra skattsvika farið til ákæruvaldsins árlega á síðastliðnum þremur árum og hve mörgum þeirra hefur lokið með sakfellingu? Hver var meðalafgreiðslutími mála frá því að skattrannsókn hófst og í hve mörgum tilvikum hafa mál fyrnst í kæru- og dómsmeðferð?
     4.      Hver er skoðun ráðherra á því að færa saksókn og ákæruvald í skattsvikamálum til embættis skattrannsóknarstjóra og málsforsvar í dómsmálum um ágreining í skattamálum til embættis ríkisskattstjóra, sbr. tillögur skattsvikanefndar frá desember 2004, og hvaða áhrif hefði það á málsmeðferð og skilvirkni í skattsvikamálum?



Skriflegt svar óskast.