Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 127. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 127 — 127. mál.
til fjármálaráðherra um skatteftirlit með stórfyrirtækjum.
1. Hve mörg af 100 stærstu fyrirtækjum landsins, mælt í veltu, hafa sætt skatteftirliti á síðustu tíu árum og hvaða árangri hefur það skilað, m.a. í auknum skattskilum?
2. Hvernig hefur skatteftirliti með stórfyrirtækjum verið háttað á tímabilinu og hvernig hefur verið búið að skattyfirvöldum til þeirra verka?
3. Hvert er mat ráðherra á tillögu sem fram kemur í skýrslu skattsvikanefndar frá desember 2004, um að koma á fót sérhæfðri eftirlitsdeild með stórfyrirtækjum, t.d. við embætti Ríkisskattstjóra, eða sérstakri miðlægri skattstofu, en slík deild eða skattstofa annaðist eftirlit og aðra framkvæmd á skattalögum fyrir stórfyrirtæki um land allt? Hafa verið gerðar áætlanir um mannaflaþörf eða kostnað við þetta?
4. Er í undirbúningi frumvarp um eftirlitsdeild eða skattstofu af þessu tagi? Ef svo er, hvenær má vænta þess að það verði lagt fram á Alþingi?
5. Hver er reynslan af starfrækslu sérstaks skatteftirlits með stórfyrirtækjum annars staðar á Norðurlöndunum.
Skriflegt svar óskast.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 127 — 127. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um skatteftirlit með stórfyrirtækjum.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.