Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 134. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 134  —  134. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um lengingu fæðingarorlofs.

Frá Katrínu Júlíusdóttur.



     1.      Telur ráðherra að til greina komi að lengja fæðingarorlof enn frekar, t.d. í 12 mánuði þar sem móðir fengi fimm mánuði, faðir fimm mánuði og sameiginlega fengju foreldrar tvo mánuði?
     2.      Hver yrði útgjaldaauki fæðingarorlofssjóðs við slíka framkvæmd?
     3.      Hver er núverandi kostnaður ríkis og sveitarfélaga vegna dagvistunarúrræða fyrir börn að 12 mánaða aldri?