Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 157. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 157  —  157. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um aðgerðir til að bæta heilbrigði Íslendinga.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



    Hvað líður framkvæmd ályktunar Alþingis frá 11. maí 2005 um aðgerðir til að bæta heilbrigði Íslendinga með hollara mataræði og aukinni hreyfingu?