Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 161. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 161  —  161. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um stöðu íslenskra friðargæsluliða eða hermanna í Afganistan.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



     1.      Hvernig skýrir ráðherra þátttöku íslenskra friðargæsluliða, svokallaðra, í hernaðarverkefnum innan endurreisnarsveita alþjóðlega öryggisliðsins í Afganistan (ISAF) í ljósi vopn- og herleysisstefnu Íslands hingað til?
     2.      Hverju sætir að starf íslenskra hópa eða teyma í Afganistan, sem sinna jöfnum höndum hernaðarlegum verkefnum og upplýsingaöflun og uppbyggingarstarfi, hefur ekki verið kynnt sem slíkt og borið undir utanríkismálanefnd?
     3.      Lítur ríkisstjórnin svo á að enn séu í gildi stefnan um herleysi og vopnleysi, og fyrirvarar þar um, sem voru grundvöllur aðildar Íslands að Sameinuðu þjóðunum 1946 og einnig voru ítrekaðir þegar Ísland gerðist aðili að NATO 1949? Ef svo er, hvernig samrýmist vísir að íslenskum herdeildum á erlendri grund óbreyttri stefnu að þessu leyti?