Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 207. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 207  —  207. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um að meta kosti og galla þess að flytja innanlandsflug úr Vatnsmýri.

Flm.: Hjálmar Árnason, Jónína Bjartmarz, Grétar Mar Jónsson.


    Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að skipa starfshóp til að meta kosti og galla þess að flytja innanlandsflug úr Vatnsmýri. Hópurinn verði skipaður einum fulltrúa Flugmálastjórnar, tveimur frá flugrekstraraðilum, einum frá Flugkef, einum frá Reykjavíkurborg, einum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og einum án tilnefningar. Hópurinn skili áliti fyrir 1. mars 2006.

Greinargerð.


    Þingsályktunartillögu þessari er ætlað að setja af stað vinnu er dragi fram helstu kosti og galla þess að flytja innanlandsflug úr Vatnsmýrinni í Reykjavík. Umræða þess efnis hefur verið æði fyrirferðarmikil undanfarin missiri og sýnist þar sitt hverjum. Fullyrðingar hafa gengið á víxl um afleiðingar þess að færa innanlandsflugið úr Vatnsmýrinni og þá ekki síður um hugsanlega staðsetningu nýs flugvallar fyrir innanlandsflugið. Þingsályktunartillagan gerir ráð fyrir því að starfshópurinn dragi fram á sem hlutlægastan hátt þá kosti sem í stöðunni eru.
    Fyrir liggur að frambjóðendur til borgarstjórnar í Reykjavík í næstu kosningum hafa á stefnu sinni að flytja flugvöllinn úr Vatnsmýri. Við því verður að bregðast. Velta þarf upp spurningunni um hvar ný miðstöð innanlandsflugs verði best staðsett með hliðsjón af öryggi, kostnaði, samgöngum og þjónustu.
    Fram hefur komið að varnarliðið setur fram þá kröfu að Íslendingar taki á sig rekstrarkostnað Keflavíkurflugvallar í kjölfar minnkandi herflugs og vaxandi umferðar farþegaflugs. Því hafa sjónir ýmissa beinst að Keflavíkurflugvelli sem heppilegum innanlandsflugvelli þar eð ná megi samlegðaráhrifum af rekstri innanlands- og alþjóðaflugs. Skoða þarf hins vegar hvort grípa þurfi til samgöngubóta við höfuðborgarsvæðið sem og staðsetningu flugstöðvar fyrir innanlandsflug á Keflavíkurflugvelli. Þá þarf að taka af allan vafa um hvort Keflavíkurflugvöllur geti tekið við aukinni flugumferð. Samgönguráðherra hefur lýst því yfir opinberlega að komi til þess að innanlandsflug flytjist úr Reykjavík verði það staðsett á Keflavíkurflugvelli.
    Aðrir kostir hafa verið nefndir, svo sem Löngusker í Skerjafirði, Álftanes og Mosfellsbær. Starfshópnum er ætlað að líta til allra þessara möguleika út frá fyrrgreindum forsendum.