Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 226. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 226 — 226. mál.
um að fækka kvótabundnum fisktegundum.
Alþingi ályktar að fela sjávarútvegsráðherra að vinna að því að fækka kvótabundnum fisktegundum þegar á næsta fiskveiðiári. Einkum verði horft til fisktegunda sem eru oftast meðafli við aðrar veiðar (aukategundir) eða fisktegunda sem aflamark hefur ekki náðst í.
Á undanförnum árum hefur verið rík tilhneiging til þess að fjölga fisktegundum í kvótakerfinu sem valdið hefur ýmsum erfiðleikum við framkvæmd veiða, svo sem auknu brottkasti og óhagræði við fiskveiðar skipa með mismunandi veiðarfæri. Fyrst ber að athuga hvort afnema eigi kvótasetningu á keilu, löngu, skötusel, sólkola og steinbít. Jafnframt verði skoðað hvort fella eigi niður kvótasetningu ýsu og ufsa, þar sem ufsinn er flökkutegund í íslenskri lögsögu og aflaheimildir á ýsu eru það rúmar að kvótasetning ætti að vera óþörf.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 226 — 226. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um að fækka kvótabundnum fisktegundum.
Flm.: Grétar Mar Jónsson, Guðjón A. Kristjánsson og Sigurjón Þórðarson.
Alþingi ályktar að fela sjávarútvegsráðherra að vinna að því að fækka kvótabundnum fisktegundum þegar á næsta fiskveiðiári. Einkum verði horft til fisktegunda sem eru oftast meðafli við aðrar veiðar (aukategundir) eða fisktegunda sem aflamark hefur ekki náðst í.
Greinargerð.