Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 88. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 262  —  88. mál.




Svar



heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um endurgreiðslu á tannlæknakostnaði barna og unglinga.


     1.      Hversu há var endurgreiðsla vegna tannlæknakostnaðar barna og unglinga á árunum 2003 og 2004, sundurliðað eftir þessum aldurshópum:
                  a.      að 6 ára aldri,
                  b.      7–12 ára,
                  c.      13–17 ára?
    
Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun ríkisins greiddi stofnunin eftirfarandi upphæðir vegna tannlæknaþjónustu barna á tilgreindum aldri:

Ár Aldursbil Hlutur TR í kr.
2003: 0–3 ára 21.432.784
4–8 ára 175.099.379
9–12 ára 151.317.840
13–17 ára 195.021.081
2004: 0–3 ára 20.877.196
4–8 ára 165.411.403
9–12 ára 143.817.795
13–17 ára 198.398.138

     2.      Hver hefði endurgreiðslan orðið ef kostnaðurinn hefði verið að fullu endurgreiddur, sundurliðað á sama hátt?
    
Tryggingastofnun ríkisins skráði ekki heildarupphæðir á reikningum tannlækna á þessum árum og því er ekki hægt að sjá hver heildarkostnaður var.

     3.      Hversu mörg börn fengu endurgreiðslu á árunum 2003 og 2004 í hverjum aldurshópi og hvað er það hátt hlutfall barna í þessum aldurshópum?

Ár Aldursbil Fjöldi Hlutfall, %
2003: 0–3 ára 3.099 18,5
4–8 ára 16.176 75,5
9–12 ára 14.967 81,9
13–17 ára 15.870 71,8
2004: 0–3 ára 2.969 17,8
4–8 ára 15.563 72,7
9–12 ára 14.304 78,9
13–17 ára 16.236 71,5

     4.      Liggur fyrir rannsókn á tannheilsu barna og unglinga sem ráðherra boðaði að hrundið yrði af stað árið 2004?
    
Landsrannsókn á munnheilsu Íslendinga, MUNNÍS, var hleypt af stokkunum á skólaárinu 2004–2005. Skoðað var slembiúrtak 20% barna á aldrinum 6, 12 og 15 ára á Íslandi. Samtals voru 2.254 börn skoðuð.
    Áformað var að hefja skoðanir á haustmissiri 2004. Sjö vikna verkfall grunnskólakennara setti hins vegar strik í reikninginn, og varð til þess að fresta varð skoðunum þar til á vormissiri. Síðustu skoðunum lauk í lok aprílmánaðar 2005. Gagnainnsláttur var í höndum Félagsvísindastofnunar og er nýlokið. Úrvinnsla er nú að hefjast og er fyrstu niðurstaðna að vænta fyrir áramót.

     5.      Eru uppi áform hjá ráðherra um frekari endurgreiðslur á tannlæknakostnaði barna?
    Þegar niðurstöður landsrannsóknarinnar MUNNÍS liggja fyrir verður farið yfir hvort breyta þarf núverandi endurgreiðslukerfi vegna tannlækninga. Þá verður hægt að skoða hvort tannheilsa barna í landinu hefur batnað eða versnað. Ef niðurstöður sýna slæma tannheilsu meðal barna kemur í ljós í hvaða hópum vandinn er mestur og verða ákvarðanir um framhaldið byggðar á faglegum forsendum.