Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 254. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 267  —  254. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.


     1.      Hve mikið fjármagn hefur verið sett til að hrinda í framkvæmd áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára sem samþykkt var á Alþingi 28. maí 2004? Hvaða áform eru um árlegt fjármagn til verkefna sem tengd eru áætluninni fram til loka hennar árið 2008 og hefur verið gerð markviss áætlun um fjárþörf á tímabilinu?
     2.      Hvað hefur verið gert til að efla starfs- og endurmenntun ófaglærðra kvenna á vinnumarkaðinum, sbr. áætlunina frá maí 2004, og hefur verið lagt aukið fjármagn í það verkefni?
     3.      Hvað líður þeim áformum í áætluninni að ráðuneyti og stofnanir setji sér samræmdar jafnréttisáætlanir fyrir árslok 2005?
     4.      Hvað líður úttekt á áhrifum launakerfis ríkisins á launmun kvenna og karla sem taka átti til launa og hvers konar frekari þóknana í samræmi við 2. mgr. 14. gr. jafnréttislaga og hvenær má vænta niðurstöðu?