Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 264. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 277  —  264. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um jafnan rétt til tónlistarnáms.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur og Jóni Bjarnasyni.



    Hvernig hyggst ráðherra tryggja:
     a.      að nemendur alls staðar á landinu hafi jafna möguleika til tónlistarnáms,
     b.      að kennslukostnaður allra tónlistarnemenda sé greiddur eins og lög gera ráð fyrir,
     c.      að ekki sé farið á svig við ákvæði laga um einkakennslu í aðalnámsgrein?