Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 266. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 279  —  266. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um vegaframkvæmdir í Heiðmörk.

Frá Valdimar L. Friðrikssyni.



     1.      Hyggst ráðherra heimila Vegagerðinni að leggja bundið slitlag á veg um Heiðmörk? Ef svo er, hvenær hefjast framkvæmdir og hvenær er áætlað að þeim ljúki?
     2.      Hefur verið gert umhverfismat vegna þessara framkvæmda? Ef svo er ekki, verður það gert áður en þær hefjast?