Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 192. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 291  —  192. mál.




Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Björgvins G. Sigurðssonar um kostnað við sameiningarkosningar.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:


     Hver var heildarkostnaður annars vegar ríkisvaldsins og hins vegar sveitarfélaga við nýafstaðnar sameiningarkosningar og átakið allt um sameiningu sveitarfélaga? Hver er kostnaðurinn sundurgreindur eftir verkefnum og sameiningartillögum?

    Leitað var upplýsinga hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og samstarfsnefndum um sameiningu sveitarfélaga.

a. Kostnaður ríkisins.
    Fjárheimildir ráðuneytisins vegna verkefnis um eflingu sveitarstjórnarstigsins nema alls 38,5 millj. kr. Þar af koma 28,5 millj. kr. frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga en 10 millj. kr. af fjárlögum fyrir árið 2005.
    Ekki liggur fyrir endanlegt uppgjör verkefnisins eða sundurliðun einstakra þátta þess enda er því ekki að fullu lokið. Frá því að verkefnið fór af stað og fram í miðjan október sl. hefur ráðuneytið greitt um 23,4 millj. kr. en ekki er búist við að endanlegur kostnaður liggi fyrir fyrr en snemma árs 2006.

b. Kostnaður sveitarfélaga.
    Í tengslum við kosningarnar 8. október sl. hefur ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga úthlutað um 90 millj. kr. til samstarfsnefnda um sameiningu sveitarfélaga á grundvelli vinnureglna sjóðsins og reglna um fjárhagslega aðstoð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til að greiða fyrir sameiningu sveitarfélaga, nr. 295/2003, með síðari breytingum. Skipting framlaga kemur fram í eftirfarandi töflu. Áætlað var að framlög Jöfnunarsjóðs næmu allt að 85% af heildarkostnaði við könnun á hagkvæmni sameininga, kynningu á sameiningartillögum og atkvæðagreiðslu, og því gert ráð fyrir að sveitarfélögin sjálf bæru um 15% kostnaðarins. Aflað var upplýsinga frá samstarfsnefndunum sjálfum um áætlaðan kostnað við kosningarnar 8. október sl. og samkvæmt þeim nam heildarkostnaður um 110 millj. kr.
    Leitað var eftir upplýsingum frá samstarfsnefndunum um heildarkostnað þeirra vegna kosninganna 8. október sl. til að svara fyrirspurninni. Vegna þess að stutt er liðið frá kosningum hafa nefndirnar ekki enn tekið saman uppgjör um heildarkostnað. Af svörum þeirra má þó ráða að flestar nefndanna geri ráð fyrir að áætlanir þeirra standist nokkurn veginn en hjá sumum þeirra má ætla að um viðbótarkostnað verði að ræða.
    Íbúar í fimm sveitarfélögum eiga eftir að greiða aftur atkvæði um sömu tillögu, í samræmi við 3. mgr. ákvæðis til bráðabirgða IV við sveitarstjórnarlög, nr. 45/1998. Viðbótarkostnaður samstarfsnefndanna vegna þessa gæti verið allt að 16 millj. kr. og þar af kæmu þá allt að 13,6 millj. kr. úr Jöfnunarsjóði.
    Eftir því sem næst verður komist gæti því heildarkostnaður samstarfsnefndanna numið allt að 126 millj. kr. og greiðsla Jöfnunarsjóðs á grundvelli vinnureglna gæti að hámarki numið um 103,6 millj. kr. af þeirri fjárhæð. Sundurliðun í töflu um kostnað hverrar samstarfsnefndar byggist á áætlunum nefndanna sjálfra og/eða útreikningum Jöfnunarsjóðs og verður að gera þann fyrirvara að ekki er um endanlegar fjárhæðir að ræða.
    Í tengslum við átak til eflingar sveitarstjórnarstigsins og í samræmi við sameiginlega viljayfirlýsingu félagsmálaráðherra, fjármálaráðherra og Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 17. september 2004 var áætlað að verja allt að 2.400 millj. kr. til sameiningarframlaga á árunum 2005–2009 í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga á grundvelli úthlutunarreglna sjóðsins. Framlög Jöfnunarsjóðsins til samstarfsnefnda samkvæmt því er að framan greinir dragast frá þessum fjármunum.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Umsóknir á grundvelli a-liðar 1. gr. reglna nr. 295/2003.
Úthlutun á grundvelli vinnureglna (miðað við áætlun).
Sveitarfélög Íbúar Úthlutun samkvæmt vinnureglum
Borgarfjörður norðan Skarðsheiðar 3.511 4.579.950
Snæfellsnes 3.980 4.791.000
Dalabyggð o.fl. 971 2.636.950
Tálknaförður/Vesturbyggð 1.346 2.405.700
Hólmavíkurhreppur o.fl. 689 2.910.050
Húnaþing vestra/Bæjarhreppur 1.278 2.375.100
Blönduóssbær o.fl. 1.653 3.343.850
Skagafjörður/Akrahreppur 4.356 3.760.200
Eyjafjörður 23.086 14.988.700
Þingeyjarsýsla 3.864 5.538.800
Svalbarðshreppur/Þórshafnarhreppur 527 2.037.150
Vopnafjörður/Skeggjastaðahreppur 869 2.191.050
Fjarðabyggð o.fl. 4.137 5.661.650
Árborgarsvæði 10.785 8.253.250
Uppsveitir Árnessýslu 2.515 3.731.750
Reykjanesbær o.fl. 13.674 8.353.300
Hafnarfjörður/Vatnsleysustrandarhreppur 22.129 12.096.450
Samtals 99.370 89.654.900

c. Kostnaður samtaka sveitarfélaga.
    Samkvæmt upplýsingum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga hefur ekki verið haldið sérstaklega utan um kostnað verkefnisins af þess hálfu. Fulltrúar sambandsins í nefndum átaksins fengu greidda þóknun af ráðstöfunarfé verkefnisins. Ekki er að öðru leyti hægt að svara fyrirspurninni hvað varðar kostnað sambandsins. Að beiðni ráðuneytisins leitaði sambandið eftir upplýsingum frá landshlutasamtökum sveitarfélaga varðandi þeirra kostnað. Öll landshlutasamtök nema Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sendu sameiningarnefnd greinargerðir um sveitarfélög á sínu starfssvæði. Landshlutasamtök skipulögðu einnig fundi verkefnisstjórnar um eflingu sveitarstjórnarstigsins með sveitarstjórnarmönnum á þeirra svæði o.fl. Í flestum tilvikum er þó ekki um það að ræða að kostnaði við verkefnið hafi verið haldið sérgreindum í bókhaldi landshlutasamtaka. Undantekning eru Samtök sveitarfélaga á Austurlandi, en í ársreikningi fyrir árið 2004 nam liðurinn sameining sveitarfélaga o.fl. 329.828 kr., og Eyþing sem samkvæmt yfirliti hefur bókfært 180.935 kr. undir liðnum sameining sveitarfélaga á árunum 2003 og 2004. Fjórðungssamband Vestfirðinga áætlar að heildarkostnaður þess vegna alls átaksins hafi numið um 615 þús. kr. en kostnaði hefur ekki verið haldið aðgreindum í bókhaldi.