Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 278. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 293  —  278. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um vinnslu skógarafurða.

Frá Þuríði Backman.



     1.      Hvað hafa landbúnaðarráðuneytið og undirstofnanir þess gert til að undirbúa þróun og vinnslu afurða úr ört vaxandi nytjaskógum landsins?
     2.      Hve miklu fé hefur verið varið til að undirbúa nytjar þess efnis sem gert er ráð fyrir að falli til hjá þeim nytjaskógræktarverkefnum sem þegar eru komin af stað?