Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 131. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 306  —  131. mál.




Svar



iðnaðarráðherra við fyrirspurn Drífu Hjartardóttur um þriggja fasa rafmagn.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hve margir fengu aðgang að þriggja fasa rafmagni á orkusvæði Rafmagnsveitna ríkisins frá 1. janúar 2001 til 1. október 2005, sundurgreint eftir landsvæðum?
     2.      Hve miklu fé er áætlað að verja í framkvæmdir við þriggja fasa rafmagn árin 2005 og 2006?


Fjöldi þeirra sem fengið hafa aðgang að þriggja fasa rafmagni
á orkusvæði Rafmagnsveitna ríkisins, eftir landsvæðum.

2001 2002 2003 2004 2005*
Vesturland 14 13 18 14 15
Norðurland vestra 14 33 27 20 23
Norurland eystra 23 38 31 18 74
Austurland 10 39 13 15 19
Suðurland 29 55 44 24 38
Samtals 90 178 133 91 169
* til 1. október

    Árið 2005 verður kostnaður Rariks við styrkingu, endurnýjun og nýlagnir í sveitum um 650 millj. kr. Áformað er að verja samsvarandi upphæð árið 2006 til sams konar verkefna. Þessu fjármagni hefur að mestu verið varið til lagningar jarðstrengja sem í öllum tilfellum eru þriggja fasa og til endurnýjunar á spennistöðvum sem í flestum tilfellum eru þriggja fasa.
    Þær línur sem unnið er að endurnýjun á eru ýmist einfasa eða þriggja fasa en almennt voru aðallínur þriggja fasa en álmur og aðallínur á strjálbýlum svæðum einfasa.