Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 249. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 333  —  249. mál.




Svar



menntamálaráðherra við fyrirspurn Sigurjóns Þórðarsonar um mannaráðningar hjá Ríkisútvarpinu.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hversu margir og hvaða starfsmenn hafa verið ráðnir án auglýsingar til Ríkisútvarpsins til þess að sjá um dagskrárgerð og fréttatengt efni í sjónvarpi á sl. 10 árum? Óskað er eftir að sundurgreint verði í svarinu til hvaða þátta fólk hefur verið ráðið.

    Ráðuneytið óskaði eftir upplýsingum frá Ríkisútvarpinu um svar við fyrirspurninni. Þar kemur fram að grundvallarbreytingar hafi verið gerðar á skipulagi dagskrárgerðar í sjónvarpi og útvarpi í kjölfar hagræðingarverkefnisins Betri rekstur árið 1997. Jafnframt hafi verið gerðar veigamiklar breytingar á stjórnskipulagi stofnunarinnar, sem m.a. höfðu í för með sér að ýmis störf hjá stofnuninni voru lögð niður og önnur búin til. Störf dagskrárgerðarmanna hjá sjónvarpi voru meðal þeirra sem voru lögð niður.
    Laus störf á fréttastofum Ríkisútvarpsins eru auglýst og útvarpsráð gefur útvarpsstjóra umsagnir um ráðningu fastráðinna fréttamanna. Frá árinu 1997 hafa nánast allir dagskrárgerðarmenn í sjónvarpi starfað sem verktakar en þeir sem ráðnir hafa verið sem launþegar án undangenginna auglýsinga eru Eva María Jónsdóttir, Eyrún Magnúsdóttir, Jóhanna Vilhjálmsdóttir (í hlutastarf) og Þórhallur Gunnarsson. Sú fyrstnefnda hefur látið af störfum. Öll starfa, eða hafa starfað, við þættina Kastljós og Kastljósið. Ekki hefur verið auglýst eftir starfsmönnum í þau störf sem unnin eru í verktöku.
    Samkvæmt 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum, skulu laus störf við ríkisstofnanir auglýst opinberlega. Ráðuneytið mun beina tilmælum til Ríkisútvarpsins um að stofnunin fari að lögum í þessu efni.