Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 231. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 366  —  231. mál.




Svar



forsætisráðherra við fyrirspurn Önnu Kristínar Gunnarsdóttur um aldur og menntun á landsbyggðinni og höfuðborgarsvæðinu.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu hátt hlutfall íbúa á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og landsbyggðinni hins vegar er á aldrinum:
                  a.      20–29 ára
                  b.      30–39 ára?
     2.      Hvaða menntun hafa íbúar landsbyggðarinnar annars vegar og höfuðborgarsvæðisins hins vegar, sundurliðað eftir sömu aldursflokkum og eftirfarandi menntun:
                  a.      grunnmenntun,
                  b.      starfsnámskeið/gagnfræðapróf,
                  c.      framhaldsskólamenntun,
                  d.      sérskólamenntun,
                  e.      háskólamenntun?


Mannfjöldi 1. desember 2004.


Heildarmannfjöldi 20–29 ára 30–39 ára Heildarmannfjöldi 20–29 ára 30–39 ára
Landið allt 293.577 42.686 41.499 100,0 14,5 14,1
Höfuðborgarsvæðið 184.244 27.954 27.073 100,0 15,2 14,7
Landsbyggðin 109.333 14.732 14.426 100,0 13,5 13,2
Heimild: Hagstofa Íslands.

Menntun eftir búsetu 2004.


Áætlaður fjöldi. Hlutfallsleg skipting.
16–74 ára 20–29 ára 30–39 ára 16–74 ára 20–29 ára 30–39 ára
Alls 199.600 39.400 40.100 100,0 100,0 100,0
Grunnmenntun 81.300 15.100 11.600 40,7 38,3 28,8
Starfs- og framhaldsmenntun 80.600 19.600 15.900 40,4 49,8 39,5
Háskólamenntun 37.700 4.700 12.700 18,9 11,9 31,6
Höfuðborgarsvæði 128.700 29.200 25.200 100,0 100,0 100,0
Grunnmenntun 44.800 10.100 5.400 34,8 34,7 21,4
Starfs- og framhaldsmenntun 54.600 15.100 10.300 42,5 51,5 40,9
Háskólamenntun 29.300 4.000 9.500 22,8 13,8 37,7
Utan höfuðborgarsvæðis 70.900 10.200 14.900 100,0 100,0 100,0
Grunnmenntun 36.600 5.000 6.200 51,5 48,7 41,4
Starfs- og framhaldsmenntun 26.000 4.600 5.500 36,6 44,7 37,2
Háskólamenntun 8.400 * 700 3.200 11,9 * 6,6 21,4
* Frávikshlutfall yfir 20%.
Heimild: Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands.
                   
    Upplýsingar um hlutfall íbúa á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og landsbyggðinni hins vegar eru fengnar úr mannfjöldaskýrslum Hagstofu Íslands 31. desember 2004.
    Upplýsingar um menntunarstig þjóðarinnar eru fengnar úr vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar. Vinnumarkaðsrannsóknin nær til allra sem eru búsettir hér á landi á aldrinum 16–74 ára. Hagstofan notar alþjóðlega flokkunarstaðalinn ISCED (International Standard Classification of Education) við flokkun menntunar. Árið 2003 var tekin í notkun ný útgáfa af ISCED-staðlinum, ISCED-97. Flokkun fyrir árið 2003 og síðar er því ekki alls kostar sambærileg við tölur fyrri ára.
    Að svo stöddu er því ekki unnt að flokka menntun í sömu flokka og áður var beitt og óskað er eftir í fyrirspurninni. Menntuninni er því hér skipt í þrjá flokka, grunnmenntun, starfs- og framhaldsmenntun og háskólamenntun.