Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 334. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 368  —  334. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um fangaflug bandarísku leyniþjónustunnar.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



     1.      Er ráðuneytinu kunnugt um að flugvélar á vegum bandarísku leyniþjónustunnar með fanga eða meinta hryðjuverkamenn, sem hvorki njóta verndar né meðhöndlunar samkvæmt alþjóðasáttmálum, hafi farið um íslenska lofthelgi eða notað Keflavíkur- eða Reykjavíkurflugvöll? Ef svo er, hver voru viðkomandi flugnúmer (N-númer), hvaðan var flogið og hvert og hvaða upplýsingar voru veittar um farm og á hvers vegum flugið væri?
     2.      Munu íslensk stjórnvöld meina flugvélum með fanga eða meinta hryðjuverkamenn sem sætt hafa eða eiga á hættu að sæta pyntingum eða annarri ómannúðlegri meðferð aðgang að íslenskri lofthelgi og afnot af íslenskum flugvöllum?
     3.      Hvernig hyggjast íslensk stjórnvöld bregðast við því ef flug á vegum opinberra aðila sem dulbúið er sem borgaralegt flug hefur farið, eða mun fara um íslenska lofthelgi eða nota íslenska flugvelli?
     4.      Hafa íslensk stjórnvöld tilkynnt eða munu þau tilkynna bandarískum stjórnvöldum um afstöðu sína í þessu efni með formlegri orðsendingu?


Skriflegt svar óskast.