Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 337. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 371 — 337. mál.
til heilbrigðisráðherra um einkarekstur í heilbrigðisþjónustunni.
1. Hve margir þjónustusamningar (ferliverk meðtalin) um einkarekstur í heilbrigðisþjónustunni hafa verið gerðir sl. þrjú ár og hvernig skiptast þeir eftir sviðum? Aðgreina skal sérstaklega hjúkrun annars vegar og læknisþjónustu hins vegar.
2. Hve mikið hefur árlega verið greitt fyrir þessa þjónustusamninga (ferliverk meðtalin), hver var kostnaðurinn á sl. ári við hvern og einn af tíu stærstu samningunum og við hverja voru þeir gerðir?
3. Hvernig er tryggt að samningar af þessu tagi tryggi öllum sambærilega heilbrigðisþjónustu óháð efnahag og telur ráðherra að setja þurfi samræmdar verklags- og vinnureglur í því skyni? Hvernig er eftirliti með þjónustusamningum háttað?
4. Hver er munurinn á kostnaði hins opinbera við þjónustu sem veitt er eftir hefðbundnum leiðum í heilbrigðiskerfinu og hins vegar sömu og sambærilega þjónustu samkvæmt samningum við einkaðaðila?
5. Hverjir gera þjónustusamninga fyrir hönd ríkisins og þarf heilbrigðisráðuneytið að staðfesta þá? Hvaða meginþættir eru lagðir til grundvallar hagkvæmni fyrir ríkissjóð við gerð þjónustusamninganna?
Skriflegt svar óskast.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 371 — 337. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um einkarekstur í heilbrigðisþjónustunni.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.