Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 356. máls.
til félagsmálaráðherra um aðstæður kvenna sem gista í athvarfinu Konukoti.
1. Er ráðherra reiðubúinn að bæta í samráði við borgaryfirvöld aðbúnað þeirra kvenna sem nú hafa náttstað í athvarfinu Konukoti, þ.m.t. að veita aðstoð svo að þær geti haft aðstöðu þar allan sólarhringinn?
2. Mun ráðherra beita sér fyrir því í samráði við borgaryfirvöld og Reykjavíkurdeild Rauða krossins að fundið verði varanlegt húsnæði fyrir konur sem leita aðstoðar í Konukoti og að skoðað verði hvernig bæta megi til frambúðar aðstæður þeirra á félags- og heilbrigðissviði?
3. Hver er ástæða þess að konur sem nú gista í Konukoti eru ekki taldar heimilislausar í nýlegri skýrslu ráðherra um aðstæður heimilislausra þegar þær hafa einungis afdrep í Konukoti hluta sólarhringsins?
Skriflegt svar óskast.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Prentað upp.
Þskj. 390 — 356. mál.
Skriflegt svar.
Fyrirspurn
til félagsmálaráðherra um aðstæður kvenna sem gista í athvarfinu Konukoti.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.