Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 357. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 391 — 357. mál.
til landbúnaðarráðherra um viðbrögð og varnir gegn fuglaflensu.
1. Hver er staða viðbragðsáætlunar yfirdýralæknis vegna yfirvofandi hættu á að alvarlegir smitandi dýrasjúkdómar, svo sem fuglaflensa, berist til landsins?
2. Til hvaða aðgerða getur yfirdýralæknir gripið við rannsókn sýktra dýra, með tilliti til þess að hér er ekki til öryggisrannsóknarstofa eða P3-aðstaða, hvorki til að taka á móti fuglum sem taldir eru sýktir, til krufninga né að greina hættuleg smitefni?
3. Er hafinn undirbúningur að rekstri öryggisrannsóknarstofu og ef svo er, hvenær má búast við að starfsemi hennar geti hafist?
4. Til hvaða varúðarráðstafana hefur yfirdýralæknir þegar gripið til að varna því að smit af fuglaflensu eða öðrum veiruafbrigðum berist til landsins?
5. Hver verða fyrstu viðbrögð annars vegar við hugsanlegu smiti í búpening og hins vegar hugsanlegu smiti milli dýrategunda eða í menn ef fuglaflensan eða afbrigði hennar berst hingað til lands?
6. Hvenær verður viðbragðsáætlun gagnvart fuglaflensu kynnt bændum og almenningi?
7. Hvaða áhrif telur ráðherra að flutningur embættis yfirdýralæknis til Selfoss hafi á náið samstarf embættisins og sýkla-, sníkjudýra- og meinafræðideildar Tilraunastöðvar Háskóla Íslands að Keldum við gerð viðbragðsáætlunar og vinnu vegna hugsanlegs heimsfaraldurs af völdum erfðabreyttra veira ?
Skriflegt svar óskast.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 391 — 357. mál.
Fyrirspurn
til landbúnaðarráðherra um viðbrögð og varnir gegn fuglaflensu.
Frá Þuríði Backman.