Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 362. máls.

Þskj. 413  —  362. mál.



Frumvarp til laga

um breyting á lögum nr. 144/1994, um ársreikninga,
með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 132. löggjafarþingi 2005–2006.)




1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. laganna:
     a.      Við 1. mgr. bætist: sbr. þó 2. mgr.
     b.      2. mgr. orðast svo:
                  Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. geta félög skv. 1. mgr. 1. gr. fengið heimild til að færa bókhaldsbækur í erlendum gjaldmiðli og semja og birta ársreikninga í þeim gjaldmiðli. Birti félag ársreikning sinn jafnframt í íslenskum krónum skal í skýringum geta um hvaða aðferðum er beitt við samningu ársreikningsins. Texti ársreiknings hjá félagi sem heimild hefur til færslu bókhalds og gerð ársreikninga í erlendum gjaldmiðli skal vera á íslensku, dönsku eða ensku.
     c.      3. mgr. fellur brott.

2. gr.

    Í stað orðsins „alþjóðlegum“ í 7. tölul. 2. mgr. 29. gr. laganna kemur: settum.

3. gr.

    Í stað tilvísunarinnar „4. mgr. 59. gr.“ í 2. mgr. 62. gr. laganna kemur: 5. mgr. 59. gr.

4. gr.

    Í stað tilvísunarinnar „2. gr.“ í 1. mgr. 71. gr. laganna kemur: 4. tölul. 1. mgr. 1. gr.

5. gr.

    90. gr. laganna orðast svo:
    Með lögum þessum eru tekin upp ákvæði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 78/660/EBE og nr. 83/349/EBE, og breytinga á þeim nr. 2001/65/EB og 2003/51/EB, og reglugerðar nr. 2002/1606/EB að því er varðar ársreikninga félaga með takmarkaða ábyrgð og samstæðureikningsskil þeirra.

6. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.
    Þegar lög þessi hafa öðlast gildi skal fella meginmál þeirra inn í lög nr. 144/1994, um ársreikninga, með síðari breytingum, og gefa þau út svo breytt með samfelldri greinatölu, kaflanúmerum og samfelldri röð töluliða og stafliða.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Við undirbúning á endurútgáfu laga um ársreikninga í samræmi við 2. mgr. 75. gr. laga nr. 45/2005, um breyting á lögum nr. 144/1994, um ársreikninga, kom í ljós að röng málsgrein féll niður með lögum nr. 45/2005. Enn fremur kom í ljós að millivísanir milli lagagreina voru ekki að öllu leyti réttar. Frumvarp þetta er flutt til að leiðrétta framangreint áður en lögin verða endurútgefin. Jafnframt er í 5. gr. tekin upp 74. gr. laga nr. 45/2005 sem breytingartillaga við lög nr. 144/1994 til þess að það ákvæði komi inn í endurútgáfu laganna sem mælt er fyrir um að nýju í 2. mgr. 6. gr. frumvarpsins.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Með lögum nr. 45/2002 var 2. mgr. 11. gr. laganna felld brott í stað 3. mgr.

Um 2.–4. gr.


    Í 2. gr. er orðalagsbreyting í samræmi við sams konar breytingu í lögum nr. 45/2005, en í 3. og 4. gr. er leiðrétting á millivísunum.

Um 5. gr.


    Nauðsynlegt er talið að fram komi í endurútgáfu laganna tilvísun til tilskipana og reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins sem ákvæði laganna byggjast á.

Um 6. gr.


    Í 1. mgr. er gildistökuákvæði en 2. mgr. heimilar að fella megi meginmál laganna inn í lög um ársreikninga og gefa þau út svo breytt.



Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:

Umsögn um frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 144/1994,
um ársreikninga, með síðari breytingum.

    Frumvarp þetta er lagt fram til leiðréttingar á fyrri breytingum á lögum um ársreikninga og til að taka upp í þau 74. gr. laga nr. 45/2005 með það fyrir augum að þessi ákvæði komi rétt fram við endurútgáfu laganna um ársreikninga. Lögfesting frumvarpsins hefur ekki áhrif á útgjöld ríkissjóðs.