Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 217. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 421  —  217. mál.




Svar



menntamálaráðherra við fyrirspurn Björgvins G. Sigurðssonar um framlög til framhaldsskóla.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvert hefur framlag hins opinbera verið til framhaldsskóla á hvern nemanda árin 1995–2005, sundurliðað eftir árum, á verðgildi ársins 2005?

    Svar við fyrirspurninni er háð skilgreiningu á „hinu opinbera“, notkun orðsins „nemandi“ og síðan á því hvernig „framlag“ er skilgreint.
    Hagstofa Íslands safnar saman upplýsingum um útgjöld hins opinbera og er þá um að ræða útgjöld ríkis, sveitarfélaga og samneyslu. Hagstofan lítur jafnframt á framhaldsskólastigið sem eina heild óháð því hver fjármagnar rekstur skólanna. Þetta þýðir m.a. að rekstur ýmissa skóla sem ekki heyra undir menntamálaráðuneytið er tekinn með í upplýsingaöflun Hagstofunnar. Skilgreining á hugtakinu nemandi hefur jafnframt tekið miklum breytingum á undanförnum árum. Gagnasöfnun Hagstofu Íslands um nemendur í framhaldsskólum nær aftur til ársins 1975. Fram til ársins 1997 voru skólar eingöngu beðnir um upplýsingar um nemendur í fullu námi. Haustið 1997 var gerð breyting á gagnasöfnuninni og þá voru skólar beðnir um upplýsingar um alla nemendur, einnig þá sem voru í hlutanámi, í kvöldskólum, öldungadeildum, meistaraskóla og fjarnámi. Nemendaskrá Hagstofunnar er byggð á upplýsingum um einstaklinga sem stunda nám í hinu hefðbundna skólakerfi svo að námskeið eru ekki talin með.
    Nemendatalning og forsendur hennar hafa þannig tekið breytingum á því tímabili sem um ræðir og því er ekki til samfellt nemendatal fyrir framhaldsskóla sem byggist á sömu forsendum fyrir allt tímabilið. Með tilkomu reiknilíkans fyrir framhaldsskólana fór menntamálaráðuneytið að styðjast við hugtakið „nemendaígildi“, eða „ársnemendur“. Stuðst er við þessa skilgreiningu á ársnemendum í fjárlögum og uppgjöri við skóla. Að baki hverjum ársnemanda eru 35 prófaðar einingar. Fjöldi ársnemenda er að mati menntamálaráðuneytis öruggasti mælikvarðinn á afköst skólanna.
    Þá er rétt að geta þess að á tímabilinu 1995–2005 hafa skólar flust á milli skólastiga, t.d. Fósturskóli Íslands, Þroskaþjálfaskólinn, Íþróttaskólinn o.fl. Þá var Fiskvinnsluskólinn fyrst sameinaður Flensborgarskólanum en síðan lagður niður.
    Meðal álitamála sem koma upp við útreikning á framlagi er t.d. stofnkostnaður og framlög til jöfnunar námskostnaðar. Í eftirfarandi töflu miðar ráðuneytið við tölur samkvæmt ríkisreikniningi sem sýnir heildarframlag ríkisins til þeirra framhaldsskóla sem undir ráðuneytið heyra, á hvern ársnemanda samkvæmt skilgreiningu ráðuneytisins. Í heildarframlaginu eru meðtaldar allar millifærslur, t.d. vegna forfalla, sérkennslu og launabóta, ef við á. Við verðlagsuppfærslu er miðað við vísitölu neysluverðs. Ríkisreikningur fyrir árið 2005 liggur ekki fyrir og því er stuðst við þær fjárheimildir sem þegar hafa verið færðar á skólana í bókhaldskerfi ríkisins og því er ekki um endanlegar fjárveitingar að ræða.

Tafla 1.1 Framlag ríkisins á hvern ársnemanda í framhaldsskólum


samkvæmt samræmdu nemendatali ráðuneytisins fyrir árin 1995–2005.



Fjárlagaár Á verðlagi hvers árs Á föstu verðlagi 2005
1995 285.873 400.536
1996 343.293 470.395
1997 330.022 444.184
1998 414.432 548.665
1999 435.179 556.987
2000 428.887 522.743
2001 562.642 642.826
2002 584.146 636.814
2003 619.864 661.779
2004 651.269 673.672
2005 663.370 663.370