Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 125. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 447  —  125. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um upplýsingaskyldu í ársreikningum.

     1.      Hver er skoðun ráðherra á tillögu skattsvikanefndar frá desember 2004, sbr. 442. mál frá 131. löggjafarþingi, um að auka kröfur um að í ársreikningum félaga verði gerð grein fyrir öllum greiðslum og samskiptum félagsins við eigendur og stjórnendur, svo og að þar verði að finna samantekt á öllum greiðslum til eða frá öðrum löndum?
    Á undanförnum árum hafa verið gerðar viðamiklar breytingar á lögum nr. 144/1994, um ársreikninga, og sömuleiðis á lögum nr. 145/1994, um bókhald. Meginmarkmið þessara breytinga, þ.m.t. upptaka alþjóðlegra reikningsskilastaðla, hefur verið að færa íslenskar reikningsskilavenjur og almenna upplýsingagjöf um starfsemi fyrirtækja að því sem tíðkast hjá öðrum þjóðum, jafnt að því er varðar viðskipti milli tengra aðila sem ótengdra. Stóran hluta af umræddum breytingum má raunar rekja til nýrra tilskipana ESB á þessu sviði sem okkur ber skylda til að innleiða í íslenskan rétt. Sem dæmi má benda á þá breytingu sem gerð var á 48. gr. ársreikningslaganna, sem fjallar um upplýsingar um launakostnað o.fl., þar sem hertar voru kröfur um upplýsingar frá skráðum félögum og stórum félögum með 500 millj. kr. eða meira í rekstrartekjur um greiðslur og samninga við stjórnendur.
    Í ljósi þess sem að framan er sagt telur fjármálaráðherra ekki nauðsynlegt að gera frekari breytingar á íslensku ársreikningslögunum að svo stöddu, enda mikilvægt að það lagaumhverfi sem fyrirtæki hér á landi búa við á þessu sviði, jafnt varðandi uppgjörsstærðir og upplýsingagjöf, sé sambærilegt því sem gerist annars staðar. Þróunin á alþjóðavettvangi hefur verið sú að auka kröfur um upplýsingagjöf frá fyrirtækjum og ekki ólíklegt að þar verði framhald á. Íslensk stjórnvöld hafa fylgt þessari þróun eftir á undanförnum árum eins og fram kemur hér að framan og munu gera það áfram.
    Á hinn bóginn verður að gæta meðalhófs í allri upplýsingasöfnun, m.a. út frá almennum sjónarmiðum um persónuvernd. Þá ber einnig að hafa í huga að séu umræddar upplýsingar nauðsynlegar í skattalegum tilgangi, hafa skattyfirvöld allar heimildir til að óska eftir tilteknum upplýsingum samkvæmt gildandi lögum um tekjuskatt og eignarskatt.

     2.      Er hægt að áætla hve mikil brögð eru að tilflutningi fjármagns milli félags og eigenda og stjórnenda fyrirtækja til að komast hjá skattgreiðslum?
    Erfitt er að átta sig á hvað fyrirspyrjandi á nákvæmlega við með orðunum „tilflutningi fjármagns milli félags og eigenda og stjórnenda fyrirtækja til að komast hjá skattgreiðslum“. Einfalda svarið við þessari spurningu er því að engin leið sé að áætla þessa stærð, en þá þarf einnig að hafa í huga að tilflutningur fjármagns á milli félags og tengdra aðila þarf ekki að vera óeðlilegur eða ólöglegur og alls ekki gerður í því skyni að komast hjá skattgreiðslum. Sé hins vegar um ólöglegan tilflutning fjármagns að ræða er það hlutverk skattyfirvalda að sjá til þess með öflugu skatteftirliti að á því sé tekið, eins og hefur verið gert í öllum stærri málum sem sætt hafa skatteftirliti og skattrannsókn á síðustu missirum. Þau mál benda til að nokkur brögð muni vera að slíkum tilflutningi. Jafnframt er það skylda skattyfirvalda að brýna fyrir rekstraraðilum með reglubundnum hætti að slíkar tilfærslur séu í takt við almenna viðskiptahætti og þær leikreglur sem um þær gilda samkvæmt almennum skattalögum, í formi ákvarðandi bréfa eða fyrirmæla eins og gjarnan er gert.

     3.      Hve oft hafa skattyfirvöld árlega á síðastliðnum þremur árum gert athugsemdir við að eftirfarandi sé gert í þeim tilgangi að dylja tekjur og hve háar fjárhæðir má áætla að um sé að ræða:
                  a.      hluti launa stjórnenda, einkum í formi bónusa eða kauprétta, hefur ekki verið gefinn upp,
                  b.      stjórnendum eða hluthöfum hafa verið veitt vaxtalaus lán eða lán með lægri vöxtum en tíðkast í viðskiptum ótengdra aðila eða lánin eru ekki endurgreidd?

    Ekki hefur reynst unnt að afla talnalegra upplýsinga frá skattyfirvöldum um fjölda þeirra tilvika sem um er spurt né heldur um hvaða fjárhæðir kunni að vera að tefla, þar sem tölfræði um greiningu eftirlits eftir tilefnum er af skornum skammti og flokkun ekki samræmd milli skattumdæma.
    Varðandi a-lið liggja þó fyrir upplýsingar hjá skattyfirvöldum um það að á árunum 2002– 2004 hafi mál sem varða vanframtaldar tekjur stjórnenda fyrirtækja, hjá rúmlega 300 einstaklingum, verið til meðferðar og hafi rannsókn þeirra leitt til 450 millj. kr. hækkunar á gjaldstofnum.
    Til svars við b-lið má benda á að ívilnandi lánveitingar til stjórnenda og eigenda er hefðbundið andlag skatteftirlits. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum frá skattyfirvöldum sættu um 125 einstaklingar endurákvörðun skatta vegna óeðlilegra lánveitinga á árunum 2002– 2004, þar sem heildarhækkun skattstofns nam samtals um 500 millj. kr.