Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 330. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 461 — 330. mál.
dómsmálaráðherra við fyrirspurn Sigurjóns Þórðarsonar endurbætur á varðskipinu Ægi.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hver var heildarkostnaður við endurbætur á varðskipinu Ægi sem lauk í haust í Póllandi? Svarið óskast sundurliðað eftir kostnaði við endurbætur, eftirlit, siglingu til og frá Póllandi og ferðakostnað.
2. Upp á hvaða upphæð hljóðaði tilboð Slippstöðvarinnar á Akureyri í sömu endurbætur á Ægi?
Leitað var til Landhelgisgæslunnar um svör við fyrirspurninni og eru eftirfarandi upplýsingar þaðan komnar. Að mati Landhelgisgæslunnar er rétt að taka fram að í upplýsingum um tilboð Slippstöðvarinnar á Akureyri er ekki að finna kostnað við aukaverk samfara tilboðsverki, eðli máls samkvæmt, en þau hefðu að umfangi verið þau sömu burtséð frá því hvar verk hefði verði unnið. Jafnframt er það mat Landhelgisgæslunnar að eftirlitskostnaður hefði ekki orðið lægri á Akureyri en í Póllandi. Fjárhæðir sem tilgreindar eru bæði í evrum og krónum eru upprunalega í krónum en reiknaðar yfir í evrur miðað við núverandi gengisskráningu.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 461 — 330. mál.
Svar

| Kostnaðarliðir | Fjárhæð í evrum | Fjárhæð í krónum | |
| 1. Endurbætur í Pólland i | |||
| Tilboð | 1.559.065 | ||
| Aukaverk | 104.445 | ||
| Samtals | 1.662.510 | ||
| 2. Eftirlit | |||
| Gisting og dagpeningar | 62.363 | 4.677.253 | |
| Ferðakostnaður | 7.091 | 531.884 | |
| Samtals | 69.454 | 5.209.137 | |
| 3. Sigling | |||
| Samtals (212 klst.) | 28.693 | 2.152.000 | |
| 4. Ferðakostnaður áhafnar | |||
| Gisting og dagpeningar | 14.689 | 1.101.665 | |
| Ferðakostnaður | 7.907 | 593.020 | |
| Samtals | 22.596 | 1.694.685 | |
| 5. Dagsektir | |||
| Dagsektir greiddar af viðgerðaraðila | 18.425 | 1.381.855 | |
| Heildarkostnaður að frádregnum dagsektum | 1.764.828 | ||
| Tilboð Slippstöðvarinnar | |||
| Tilboð (ekki kostnaður við aukaverk) | 1.733.734 | ||