Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 309. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 462  —  309. mál.




Svar



landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Þuríðar Backman um merkingar ásetningsfjár.


     1.      Hver er ástæða þess að reglugerð um merkingar búfjár, nr. 289/2005, byggist á Evrópusambandsreglum þótt landbúnaður sé undanskilinn í EES-samningnum?
    Umtalsverður útflutningur á landbúnaðarvörum er til landa Evrópusambandsins og fjölmargar reglugerðir sem varða aðbúnað búfjár og framleiðslu og vinnslu búfjárafurða hafa á undanförnum árum verið settar með hliðsjón af sambærilegum reglum Evrópusambandsins m.a. í þeim tilgangi að gæta slíkra viðskiptahagsmuna.

     2.      Eru einhverjir annmarkar á núverandi einstaklingsmerkingum sauðfjár með tilliti til rekjanleikja dýra og afurða og ef svo er, hverjir eru þeir?

    Í lögum um afréttamálefni fjallskil o.fl., nr. 6/1986, er að finna ákvæði um búfjármörk. Búfjármörk eru: örmerki, frostmerki, brennimerki, plötumerki og eyrnamörk. Skylt er hverjum búfjáreiganda að hafa glöggt mark á búfé sínu. Lömb skulu eyrnamörkuð fyrir 12. viku sumars. Skylt er að brennimerkja eða plötumerkja allt ásett sauðfé og geitfé með brennimerki eða númeri lögbýlis og eiganda, sýslutákni og númeri sveitarfélags. Að auki er heimilt að brennimerkja sömu númer og tákn á horn. Engar samræmdar reglur hafa fram til þessa verið um notkun og gerð plötumerkja eða áletrun á þau. Er nokkur fjöldi þeirra á markaði hér og þau mismunandi að gerð og stærð, einnig hafa margir bændur búið til slík merki sjálfir.
    Ef rætt er um sauðfé sérstaklega er meginástæða þess að nauðsynlegt er að taka upp breytt fyrirkomulag sú að það merkingarkerfi sem að framan er lýst er eingöngu eigandamerking sem hefur þann tilgang að rekja megi uppruna dýrsins til eiganda síns og/eða upprunahjarðar/býlis. Kerfið felur ekki í sér þann möguleika að rekja megi feril afurðanna frá bónda til borðs sem er eitt aðalmarkmið reglugerðar nr. 289/2005. Meginbreytingin með merkingareglugerð nr. 289/2005 er að hvert einstakt dýr (eldishópar í svína- og alifuglarækt) fær einkvæmt númer, líkt og kennitölu, sem fylgir dýrinu alla ævi þess og að skráðar eru upplýsingar um uppruna, fóðrun, meðhöndlun sjúkdóma o.fl. Plötumerkin skulu vera stöðluð og með forprentaðri áletrun. Rekjanleiki búfjárafurða frá bónda til borðs er grundvallarmarkmið í matvælaframleiðslu helstu viðskiptalanda okkar. Alkunna er að neytendur vilja geta fengið upplýsingar um við hvaða aðstæður vara sem þeir kaupa er framleidd, hvernig aðbúnaði og fóðrun dýra er háttað og hvort notuð hafa verið lyf og varnarefni við framleiðsluna. Enda þótt aðstæður í íslenskum landbúnaði gefi ekki jafn ríka ástæðu til slíkra efasemda og víða annars staðar er óhjákvæmilegt að íslenskur landbúnaður svari þessu kalli neytenda. Jafnframt eru útflutningshagsmunir landbúnaðarins hér hafðir í huga.

     3.      Hver var ástæða þess að landbúnaðarráðuneytið stóð að lokuðu útboði á nýjum plötumerkjum fyrir sauðfé í stað þess að fela Innkaupastofnun ríkisins að sjá um útboð?
    Framkvæmd útboðs á merkjum til nota í búfé var alfarið í höndum Bændasamtaka Íslands. Samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 289/2005 skal vera til staðar samræmt tölvuskráningarkerfi sem aðgengilegt er öllum sem ala dýr til slátrunar. Landbúnaðarráðuneytið hefur yfirumsjón með rekstri skráningarkerfisins en felur Bændasamtökum Íslands eða öðrum til þess bærum aðilum að hafa umsjón með skráningu upplýsinga í tölvuskráningarkerfið. Í desember 2002 var gert samkomulag milli ráðuneytisins og Bændasamtakanna um hönnun og rekstur tölvuskráningarkerfis. Þar er Bændasamtökunum m.a. falið að annast útboð og öflun á viðurkenndum merkjum til nota í búfé og dreifa þeim til umráðamanna búfjár. Það er skoðun ráðuneytisins að nauðsynlegt sé vegna áreiðanleika kerfisins að umsjón og eftirlit með því hvaða merki hver bóndi kaupir sé á einni hendi. Einnig að sem minnstur kostnaður falli á bændur vegna kaupa á merkjum og því sé útboð nauðsynlegt til þess að leiða í ljós hagstæðustu kostina. Að öðru leyti hefur ráðuneytið engin afskipti haft af þessum þætti málsins.

     4.      Hver er ástæða þess að merkja þarf ásetningslömb í bæði eyru, annaðhvort með plötumerkjum eða öðrum viðurkenndum merkjum?
    Ráðherra hefur með breytingu á reglugerð nr. 289/2005 ákveðið að ásetnisgslömb skuli merkt með plötumerki í annað eyrað.