Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 284. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 464  —  284. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um fullgildingu samnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Túnis.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Grétar Má Sigurðsson, Ernu S. Hallgrímsdóttur, Nínu Björk Jónsdóttur og Ólöfu Hrefnu Kristjánsdóttur frá utanríkisráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að fullgilda samning milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og lýðveldisins Túnis sem undirritaður var í Genf í Sviss 17. desember 2004.
    Samningurinn kveður á um afnám tolla á iðnaðarvörum, sjávarafurðum og unnum landbúnaðarvörum auk þess sem í honum eru ákvæði um vernd fjárfestinga og hugverkaréttinda, þjónustuviðskipti og úrlausn deilumála. Gert er ráð fyrir að EFTA-ríkin afnemi tolla og aðrar takmarkanir á innflutningi vöru sem samningurinn tekur til um leið og hann öðlast gildi en Túnis afnemi hins vegar tolla á ákveðnu aðlögunartímabili sem lýkur 1. júlí 2008. Aðlögunartími fyrir sjávarafurðir verður hins vegar allt að 18 árum uns fullri fríverslun með sjávarafurðir verður komið á.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 23. nóv. 2005.



Halldór Blöndal,


form., frsm.


Ágúst Ólafur Ágústsson.


Siv Friðleifsdóttir.



Drífa Hjartardóttir.


Margrét Frímannsdóttir.


Jónína Bjartmarz.



Steingrímur J. Sigfússon.