Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 396. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 495 — 396. mál.
frá fjármálaráðherra um viðskipti með aflaheimildir.
Með vísan til 46. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að fjármálaráðherra flytji Alþingi skýrslu um viðskipti með aflaheimildir á síðustu fjórum árum. Í skýrslunni komi skýrt fram hvaða viðskiptahættir hafa tíðkast með aflahlutdeildir og aflamark og hvernig skattalega meðferð verðmæti fá í þeim viðskiptum. Verði í þeim tilgangi leitað eldri upplýsinga ef þörf krefur.
1. Fram komi með hvaða hætti sjávarútvegsráðuneyti, Fiskistofa og aðrar opinberar stofnanir koma að þessum viðskiptum og hvernig milliganga Fiskistofu um viðskipti með þessi verðmæti nýtist skattyfirvöldum til eftirlits. Fyrir liggur það mat ríkisskattstjóra að tilkynna skuli Fiskistofu verð aflamarks ef flutnings þess milli skipa er óskað. Ætla má að sama regla gildi um flutning aflahlutdeildar. Lagt verði mat á hvort starfshættir Fiskistofu við millifærslur á aflaheimildum auðveldi útgerðum að stunda viðskiptahætti sem ekki samrýmast skattalögum, lögum um virðisaukaskatt og lögum og reglum sem gilda um reikningshald fyrirtækja og ef svo reynist, hvernig úr megi bæta.
2. Leitt verði í ljós hvernig útgerðir bókfæra verðmæti aflahlutdeilda í einstökum tegundum og hvort brögð séu að því að aflahlutdeildir séu fluttar milli útgerða á verði sem víkur frá gildandi markaðsverði. Ef svo reynist verði leitast við að leggja mat á það hve mikið vanti á að heildarverðmæti séu skráð á markaðsverði í þessum viðskiptum og hvort viðskiptin samrýmist lögum.
3. Skoðað verði hvort brögð séu að því að viðskiptum með aflahlutdeildir sé blandað saman við önnur viðskipti, t.d. með fisk, skip eða búnað, og hvort markaðsverð aflahlutdeilda, fisks eða annarra verðmæta kunni að vera rangt metið í slíkum viðskiptum. Ef svo reynist skal leitast við að leggja mat á hve mikið vanti á að heildarverðmæti sé rétt skráð í þessum viðskiptum og hvort lög og/eða samningar við sjómenn um hlutaskipti séu brotin með þeim.
4. Leitt verði í ljós hvernig útgerðir bókfæra verðmæti aflamarks í einstökum tegundum og hvort brögð séu að því að aflamark séu flutt milli útgerða á verði sem víkur frá gildandi markaðsverði þeirra. Ef svo reynist skal leitast við að leggja mat á það hve mikið vanti á að heildarverðmæti séu skráð á markaðsverði í þessum viðskiptum og hvort viðskiptin samrýmast lögum.
5. Skoðað verði hvort brögð séu að því að viðskiptum með aflamark sé blandað saman við önnur viðskipti, t.d. með fisk eða önnur verðmæti, og hvort markaðsverð aflamarks, fisks eða annarra verðmæta kunni að vera rangt metið í slíkum viðskiptum. Ef svo reynist skal leitast við að leggja mat á það hve mikið vanti á að heildarverðmæti séu skráð í þessum viðskiptum og hvort lög og/eða samningar við sjómenn um hlutaskipti séu brotin með þeim.
Gríðarlega hátt markaðsverð aflaheimilda veldur fólki og fyrirtækjum í sjávarbyggðum vanda sem ógnar víða tilvist þeirra. Þetta ástand hefur varað árum saman og staðið í vegi fyrir eðlilegri nýliðun í sjávarútvegi. Sú staðreynd að fjöldi útgerða nýtir ekki veiðiheimildir sínar og leigir öðrum veiðiréttinn bendir til þess að útgerðir sem eru ekki samkeppnisfærar í veiðum og vinnslu bæti sér það upp með háu verði á veiðirétti til annarra útgerða. Margir telja að þennan vanda megi rekja til flókinnar blöndu viðskipta með fisk og veiðiheimildir og til þeirrar staðreyndar að sjómenn taki þátt í kaupum útgerða á veiðirétti. Alþingi og stjórnvöld bera alla ábyrgð á því stjórnkerfi sem gildir í sjávarútvegi á Íslandi. Markmið þessarar skýrslubeiðni er því að leiða í ljós hvernig viðskipti með sameiginlega auðlind þjóðarinnar fara fram og hvort í viðskiptaháttunum megi sjá ástæður þess mikla vanda sem við er að etja.
Þeir sem þessarar skýrslu óska vísa til 1. gr. laga nr. 38 15 maí 1990:
„Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.“
Stjórnvöld úthluta aflahlutdeildum í tengslum við kvótasetningu tegunda og aflamarki árlega á grundvelli aflahlutdeildanna til útgerða. Ekki er lagt mat á verðmæti þessara veiðiréttinda þegar úthlutun fer fram. Þau er hins vegar verðlögð í viðskiptum útgerðarmanna og ganga kaupum og sölum milli fyrirtækja og einstaklinga í útgerð á Íslandi. Hvernig útgerðarmenn bókfæra þessi verðmæti virðist ekki ljóst. Fiskistofa annast flutning aflaheimilda milli útgerða og skráningu þeirra á skip og leikur því í raun lykilhlutverk í viðskiptum milli aðila. Þarna er um geysilega verðmæt réttindi að ræða og því ljóst að mjög mikilvægt er að stjórnvöld sinni sínum þætti með sambærilegum hætti og krafist er um önnur viðskipti. Í svari sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn frá Jóhanni Ársælssyni á þskj. 348 í máli nr. 272 á yfirstandandi þingi kemur fram að gríðarleg verðmæti ganga kaupum og sölum í viðskiptum með aflahlutdeildir. Sem dæmi um þetta skal nefnt að eitt fyrirtæki flutti frá sér sem svarar 8.000 þorskígildistonnum í aflahlutdeild til óskyldra útgerða að mati Fiskistofu á þeim tveimur árum sem svar sjávarútvegsráðherra fjallaði um. Forsvarsmaður þeirrar útgerðar sem þar á í hlut lét hafa eftir sér opinberlega að þarna væri ekki á ferðinni sala á aflahlutdeild heldur vistun hennar hjá öðrum útgerðum. Slík vistun væri algeng nú um stundir. Ef vistun aflaheimilda er eitthvað annað en viðskipti með verðmæti, þ.e. sala, er nauðsynlegt að upplýsa hvort slík vistun aflahlutdeilda samrýmist eðlilegum viðskiptaháttum. Hins vegar er ljóst af efni bréfs ríkisskattstjóra til skattstjóra frá 30. júlí 2002 að engin viðskipti með aflamark mega fara fram nema fullt verð sé tilgreint í bókhaldi aðila og getur hann engra undantekninga frá þessari reglu í bréfinu. Þar segir:
„Bréf þetta er ritað skattstjórum á grundvelli 101. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, og 39. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Athygli ríkisskattstjóra hefur verið vakin á viðskiptum af tilteknum toga með sjávarafla og aflaheimildir milli útgerða og fiskvinnslufyrirtækja. Samkvæmt frásögnum eru viðskiptin með eftirgreindum hætti: Samið er um kauprétt fiskvinnslu á tilteknum afla. Fyrir aflann skal fiskvinnslan greiða tiltekna fjárhæð í peningum, en jafnframt skal hún leggja útgerðinni til tiltekið aflamark (leigukvóta). Aflamarkið getur verið almennt aflamark, krókaaflamark, þorskaflahámark eða sóknardagar eftir því sem veiðileyfi viðkomandi skips eða báts stendur til. Algengt er að fyrir hvert tonn af óslægðum þorski leggi fiskvinnslan til aflamark fyrir tonn af þorski (tonn á móti tonni). Af framangreindu tilefni vill ríkisskattstjóri taka eftirfarandi fram: Við færslu viðskiptanna til bókar og í skattskilum verður að líta á viðskiptin í heild. Ljóst er að útgerðin fær fyrir afla, ekki aðeins þá greiðslu sem reidd er fram í peningum, heldur einnig aflamark. Heildarverð aflans er því samtala þeirrar fjárhæðar sem greidd er í peningum og verðmætis þess aflamarks sem lagt er til. Til tekna hjá útgerðinni, sbr. B-lið 7. gr. laga nr. 75/1981, ber að færa heildarverðið og telst það til virðisaukaskattsskyldrar veltu hennar, sbr. 11. gr. laga nr. 50/1988. Útgerðinni ber að tilgreina á sölureikningi heildarverð afla og virðisaukaskatt af því verði, sbr. 1. mgr. 7. gr. og 1. mgr. 20. gr. laga nr. 50/1988. Fiskvinnslan byggir síðan gjaldfærslu og innskattsfærslu vegna kaupa á afla á sölureikningi útgerðar. Aflamark eru bundið við tiltekið skip eða bát, sem veiðileyfi hefur. Fiskvinnsla getur ekki haft yfirráð aflamarks nema að eiga slíkt fley til að vista aflamark á. Dæmi eru um slíkt og er þá aflamark flutt af skipi fiskvinnslunnar til skips útgerðar. Algengara er þó í umræddum viðskiptum að fiskvinnslan eigi ekki skip og þar af leiðandi ekki aflamark. Gerast kaupin þá þannig að fiskvinnsla greiðir fyrir aflamark sem flutt eru af skipi seljanda þeirra yfir á skip útgerðar. Fiskvinnslan eignast þannig að formi til aldrei heimildina heldur leggur út fyrir henni. Í síðarnefnda tilvikinu má ljóst vera að fé það sem fiskvinnslan reiðir fram við kaup aflamarks myndar, ásamt beinu fjárgreiðslunni fyrir aflann, heildarverð hans. Í fyrrnefnda tilvikinu, þ.e. þegar fiskvinnslan hefur yfir að ráða úthlutuðu aflamarki, kann hins vegar að vera að verðmæti aflamarks liggi ekki fyrir með jafn óyggjandi hætti. Í slíkum tilvikum er rétt að miða verðmæti við almennt gangverð, sbr. skattverðsreglu 2. mgr. 8. gr. laga nr. 50/1988. Þar er kveðið á um að við skipti á vörum og þjónustu beri að miða skattverð við almennt gangverð í sams konar viðskiptum. Við að leiða fram almennt gangverð aflamarks má leita fanga hjá Fiskistofu þar sem skylt er að tilkynna henni flutning aflamarks og verð þess. Einnig er rétt að kanna gangverð aflamarks hjá kvótasölum, t.d. kvótamiðlun LÍÚ. Um gangverð á afla er hægt að afla upplýsinga hjá fiskmörkuðum og Verðlagsstofu skiptaverðs. Í þeim tilvikum að fiskvinnsla framselur til útgerðar eigið aflamark er um sölu að ræða. Tekjur af slíkri sölu ber fiskvinnslunni að sjálfsögðu að færa sér til tekna í bókhaldi sínu og skattskilum. Í þessu sambandi skal ítrekað að um er að ræða sölu aflamarks (kvótaleigu), en ekki sölu aflahlutdeildar (kvótasölu), sem kaupanda bæri að eignfæra. Söluverð aflamarks telst til veltu undanþeginnar virðisaukaskatti, skv. 6. tl. 1. mgr. 12. gr. laga nr. 50/1988, eins og ákvæðið hefur verið túlkað í skattframkvæmd. Aflamark, sem útgerðin kaupir með framangreindum hætti, hvort heldur er af fiskvinnslunni eða þriðja aðila fyrir milligöngu fiskvinnslunar, er henni heimilt að gjaldfæra. Sem tekjur af viðskiptunum ber að færa eins og að framan greinir heildarverðið sem fæst fyrir aflann í formi peningagreiðslu og aflaheimildar. Ekki er útgerðinni heimilt að færa aðeins þann hluta sem greiddur er í peningum til tekna. Slíkt samræmist hvorki ákvæðum laga nr. 50/1988 varðandi skattskylda veltu og skattverð, eins og að framan er rakið, né samræmist það ákvæði 6. gr. bókhaldslaga, nr. 145/1994, um að bókhaldi skuli haga þannig að á skýran og aðgengilegan hátt megi rekja viðskipti og notkun fjármuna. Sé aflamark flutt á skip útgerðar áður en gagngjaldið (aflinn) er afhent, þá verður að líta á flutninginn sem fyrirframgreiðslu sem útgerðinni ber að standa skil á virðisaukaskatti af, sbr. 3. mgr. 13. gr. laga nr. 50/1988.“
Í svari sjávarútvegsráðherra kom fram að 100 stærstu fyrirtækin í viðskiptum með aflamark fluttu 71.190 þorskígildistonnum meira frá sér en til sín á þessum tveimur árum. Skoðun skýrslubeiðenda er að það sé hlutverk Alþingis og stjórnvalda að fylgjast með því hvernig með þau gríðarlegu verðmæti er farið sem ganga kaupum og sölum í viðskiptum milli útgerða með aflahlutdeild og aflamark, einnig hvernig þær opinberu stofnanir, sem annast mikilvæga þætti í viðskiptunum, rækja hlutverk sitt.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 495 — 396. mál.
Beiðni um skýrslu
frá fjármálaráðherra um viðskipti með aflaheimildir.
Frá Jóhanni Ársælssyni, Guðjóni A. Kristjánssyni, Össuri Skarphéðinssyni,
Jóni Bjarnasyni, Björgvini G. Sigurðssyni, Kristjáni L. Möller,
Þuríði Backman, Merði Árnasyni og Magnúsi Þór Hafsteinssyni.
Með vísan til 46. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að fjármálaráðherra flytji Alþingi skýrslu um viðskipti með aflaheimildir á síðustu fjórum árum. Í skýrslunni komi skýrt fram hvaða viðskiptahættir hafa tíðkast með aflahlutdeildir og aflamark og hvernig skattalega meðferð verðmæti fá í þeim viðskiptum. Verði í þeim tilgangi leitað eldri upplýsinga ef þörf krefur.
1. Fram komi með hvaða hætti sjávarútvegsráðuneyti, Fiskistofa og aðrar opinberar stofnanir koma að þessum viðskiptum og hvernig milliganga Fiskistofu um viðskipti með þessi verðmæti nýtist skattyfirvöldum til eftirlits. Fyrir liggur það mat ríkisskattstjóra að tilkynna skuli Fiskistofu verð aflamarks ef flutnings þess milli skipa er óskað. Ætla má að sama regla gildi um flutning aflahlutdeildar. Lagt verði mat á hvort starfshættir Fiskistofu við millifærslur á aflaheimildum auðveldi útgerðum að stunda viðskiptahætti sem ekki samrýmast skattalögum, lögum um virðisaukaskatt og lögum og reglum sem gilda um reikningshald fyrirtækja og ef svo reynist, hvernig úr megi bæta.
2. Leitt verði í ljós hvernig útgerðir bókfæra verðmæti aflahlutdeilda í einstökum tegundum og hvort brögð séu að því að aflahlutdeildir séu fluttar milli útgerða á verði sem víkur frá gildandi markaðsverði. Ef svo reynist verði leitast við að leggja mat á það hve mikið vanti á að heildarverðmæti séu skráð á markaðsverði í þessum viðskiptum og hvort viðskiptin samrýmist lögum.
3. Skoðað verði hvort brögð séu að því að viðskiptum með aflahlutdeildir sé blandað saman við önnur viðskipti, t.d. með fisk, skip eða búnað, og hvort markaðsverð aflahlutdeilda, fisks eða annarra verðmæta kunni að vera rangt metið í slíkum viðskiptum. Ef svo reynist skal leitast við að leggja mat á hve mikið vanti á að heildarverðmæti sé rétt skráð í þessum viðskiptum og hvort lög og/eða samningar við sjómenn um hlutaskipti séu brotin með þeim.
4. Leitt verði í ljós hvernig útgerðir bókfæra verðmæti aflamarks í einstökum tegundum og hvort brögð séu að því að aflamark séu flutt milli útgerða á verði sem víkur frá gildandi markaðsverði þeirra. Ef svo reynist skal leitast við að leggja mat á það hve mikið vanti á að heildarverðmæti séu skráð á markaðsverði í þessum viðskiptum og hvort viðskiptin samrýmast lögum.
5. Skoðað verði hvort brögð séu að því að viðskiptum með aflamark sé blandað saman við önnur viðskipti, t.d. með fisk eða önnur verðmæti, og hvort markaðsverð aflamarks, fisks eða annarra verðmæta kunni að vera rangt metið í slíkum viðskiptum. Ef svo reynist skal leitast við að leggja mat á það hve mikið vanti á að heildarverðmæti séu skráð í þessum viðskiptum og hvort lög og/eða samningar við sjómenn um hlutaskipti séu brotin með þeim.
Greinargerð.