Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 400. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 510  —  400. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um alnæmissmit.

Frá Guðrúnu Ögmundsdóttur.



     1.      Hversu margir einstaklingar hafa greinst með alnæmissmit hér á landi fram til 1. desember sl. og hvernig eru kynjahlutföllin í þeim hópi?
     2.      Hvernig skiptist hópurinn eftir aldri og hvert er hlutfall smitaðra af hverjum aldursflokki, þ.e. 0–14 ára, 15–19 ára, 20–29 ára og svo áfram á 10 ára aldursbili?
     3.      Hvernig er dreifingu alnæmissmitaðra háttað eftir smitleiðum og áhættuhegðun, t.d. fíkniefnaneytendur, gagnkynhneigðir, samkynhneigðir o.s.frv.?
     4.      Er á döfinni að hvetja til aukinnar notkunar á smokkum? Ef svo er, á hvern hátt?
     5.      Er fyrirhugað að dreifa smokkum ókeypis, t.d. til heilsugæslustöðva og unglingamóttöku, námsráðgjafa í grunn- og framhaldsskólum o.s.frv.?
     6.      Er fyrirhugað að gera áætlun um bætt aðgengi að smokknum?
     7.      Er fyrirhugað að fella niður virðisaukaskatt af smokkum?
     8.      Hefur verið skoðaður sá möguleiki að deila út hreinum sprautum ókeypis til sprautufíkla/ fíkniefnaneytenda, til að fækka smitleiðum í þessum áhættuhópi?


Skriflegt svar óskast.