Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 232. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 557 — 232. mál.
umhverfisráðherra við fyrirspurn Jóns Gunnarssonar um viðskipti með hunda.
1. Hversu margir hundar eru skráðir á Íslandi, sundurliðað eftir sveitarfélögum?
Samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðiseftirliti sveitarfélaganna og Umhverfisstofnun eru, eftir því sem næst verður komist, yfir 6.000 hundar skráðir á Íslandi.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur áætlar að hundar á skrá í Reykjavík við áramótin 2005– 2006 verði um 1.620.
Í ársskýrslu Heilbrigðiseftirlits Kjósarsvæðis árið 2004 kemur fram að 132 hundar eru skráðir á Seltjarnarnesi í árslok en 327 í Mosfellsbæ. Í Kjós er ekki í gildi sérstök hundasamþykkt en talið er líklegt að hundar séu þar um 40.
Á Vesturlandi eru skráðir 269 hundar. Þar af 93 á Akranesi, í Borgarnesi 48, Snæfellsbæ 54, Grundarfirði 37 og í Stykkishólmi 37. Hundar á lögbýlum eru ekki skráðir.
Á starfssvæði Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða er vitað um 225 hunda í þéttbýli. Í Bolungarvík eru skráðir 36 hundar, þ.e. hundar í þéttbýli og dreifbýli, í Ísafjarðarbæ 111 hundar, Vesturbyggð 44 hundar, Tálknafirði 7 hundar og í Hólmavíkurhreppi 17 hundar. Hundar á lögbýlum eru ekki allir skráðir á svæðinu.
Á Norðurlandi vestra eru skráðir 153 hundar í stóru sveitarfélögunum. Minni sveitarfélögin á svæðinu hafa ekki sett sér hundasamþykktir og gerir heilbrigðiseftirlitið ráð fyrir því að þar séu eingöngu hundar á lögbýlum.
Í sveitarfélögum á starfssvæði Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra eru skráðir hundar sem hér segir: Í Akureyrarbæ 270, á Ólafsfirði 30, í Dalvíkurbyggð 77, Arnarneshreppi 20, Hörgárbyggð 45, Eyjafjarðarsveit 105, Svalbarðsstrandarhreppi 18, Grýtubakkahreppi 26, enginn í Grímsey, í Þingeyjarsveit 42, Skútustaðahreppi 30, Aðaldælahreppi 36, á Húsavík 52, í Tjörneshreppi 9, Kelduneshreppi 12, Öxarfjarðarhreppi 60, Raufarhafnarhreppi 11, Þórshafnarhreppi 17 og Svalbarðshreppi 20. Samtals eru þetta 880 hundar.
Eftir því sem næst verður komist.eru um 225 hundar skráðir og með leyfi hjá sveitarfélögum á starfssvæði Heilbrigðiseftirlits Austurlands. Þar eru hundar á lögbýlum ekki skráðir og í nokkrum sveitarfélögum er eitthvað um óskráða hunda.
Á starfssvæði Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja eru 677 hundar skráðir. Í Reykjanesbæ eru 397 hundar, í Grindavíkurbæ 79, Sandgerðisbæ 84, Garði 58 og í Vogum 59.
Á starfssvæði Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar og Kópavogs er skráning sem hér segir: á Álftanesi 126 hundar, í Garðabær 367, Hafnarfirði 422 og í Kópavogi 642.
Ráðuneytinu bárust ekki svör frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands en starfssvæði þess nær yfir gamla Suðurlandskjördæmið eða frá Selvogshreppi í vestri og að Skaftárhreppi í austri að báðum hreppunum meðtöldum.
2. Hversu margir stunda sölu á hundum, hver er áætluð árleg velta þeirra viðskipta og hversu margir hundar eru seldir árlega?
Upplýsingar varðandi fjölda seldra hunda árlega og veltu þeirra viðskipta eru ekki tiltækar hjá Umhverfisstofnun.
3. Hvaða skilyrði þurfa seljendur hunda að uppfylla og hvernig er eftirliti með þeim háttað?
Gæludýraverslanir þurfa samkvæmt lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, að hafa starfsleyfi sem heilbrigðisnefnd gefur út. Almennt eru hundar þó ekki seldir í gæludýraverslunum.
Í mörgum sveitarfélögum eru í gildi samþykktir um hundahald. Í sumum þeirra er kveðið á um starfsleyfisskyldu ef fleiri en fimm skráningarskyldir hundar eru á sama heimili.
Umhverfisstofnun hefur eftirlit með starfsemi sem fellur undir dýrahald í atvinnuskyni samkvæmt reglugerð nr. 1077/2004, um aðbúnað og umhirðu gæludýra og dýrahald í atvinnuskyni, sem sett er með stoð í dýraverndarlögum nr. 15/1995. .Hundaræktun í atvinnuskyni er leyfisskyld ef ræktunardýr eru sex eða fleiri og skal slík starfsemi uppfylla tiltekin skilyrði, sjá fylgiskjal. .Þeir sem ekki ná þessum mörkum þurfa ekki rekstrarleyfi frá Umhverfisstofnun en sömu kröfur eru gerðar til þessara aðila er varðar sölu og afhendingu dýra, sbr. 6. gr. framangreindrar reglugerðar, þar sem segir:
„Þeim sem selur eða gefur gæludýr ber skylda til að veita þeim sem tekur við dýrinu upplýsingar um heilsufar og aldur dýrsins og eiginleika tegundarinnar. Veita skal viðtakanda leiðbeiningar um rétta meðferð, umhirðu og aðbúnað dýrsins.
Óheimilt er að selja einstaklingi yngri en 18 ára gæludýr nema með skriflegu samþykki forráðamanna.“
Fylgiskjal.
Umhverfisstofnun:
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 557 — 232. mál.
Svar

Rekstrarleyfisskilyrði – hundaræktun.
Samkvæmt reglugerð nr. 1077/2004, um gæludýr og dýrahald í atvinnuskyni.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.