Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 355. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 564 — 355. mál.
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Bryndísar Haraldsdóttur um hjúkrunarheimili í Mosfellsbæ.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvaða áform eru uppi um byggingu hjúkrunarheimilis í Mosfellsbæ?
Verulegur skortur er á hjúkrunarrýmum í Reykjavík og nágrannasveitarfélögum samkvæmt vistunarmatsskrá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins sem byggist á vistunarmati þjónustuhópa aldraðra á svæðinu. Markvisst er unnið að því að bæta úr þessari þörf og áform eru um að reisa tvö ný hjúkrunarheimili í Reykjavík á næstu missirum. Mosfellingar hafa ekki farið varhluta af skorti á hjúkrunarrýmum og ráðherra er vel kunnugt um stöðu mála í sveitarfélaginu. Í Mosfellsbæ er ekkert hjúkrunarheimili. Mosfellingar áttu áður kost á hjúkrunarrýmum á Reykjalundi, en svo er ekki lengur. Til að koma til móts við vanda Mosfellinga hefur heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið veitt fé til reksturs dagvistarrýma í sveitarfélaginu og eru níu slík rými í Hlaðhömrum. Samkvæmt nýjustu upplýsingum þjónustuhóps aldraðra í Mosfellsbæ í byrjun desember bíða nú tveir aldraðir einstaklingar eftir hjúkrunarrými í sveitarfélaginu. Hvorugur þeirra er metinn í mjög brýnni þörf. Tuttugu Mosfellingar dvelja nú í hjúkrunarrýmum í öðrum sveitarfélögum, þar af meira en helmingur á hjúkrunarheimilinu Eir. Tveir eru á stofnunum utan höfuðborgarsvæðisins. Mosfellsbær hefur sótt um heimild til heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins fyrir byggingu 40 rýma hjúkrunarheimilis og verður sú umsókn tekin fyrir í byrjun næsta árs.
Þess má geta að nú eru hafnar framkvæmdir við byggingu 39 öryggisíbúða fyrir aldraða sem rísa munu við Hlaðhamra í Mosfellsbæ og er áætlað að þær verði fullbyggðar 1. desember 2006. Fyrir er í Hlaðhömrum bygging með 20 vernduðum þjónustuíbúðum fyrir aldraða sem ákveðið hefur verið að breyta í öryggisíbúðir. Samstarf er við Eir um þjónustu við íbúana sem þar búa. Þótt öryggisíbúðirnar uppfylli tæpast að fullu þarfir þeirra sem eru í brýnni þörf fyrir hjúkrunarrými eru þær góð viðbót við þjónustu við aldraða á svæðinu og gefa öldruðum kost á að búa lengur en ella á eigin vegum við aukið öryggi sem er í samræmi við markmið laga um málefni aldraðra.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 564 — 355. mál.
Svar