Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 146. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 567 — 146. mál.
menntamálaráðherra við fyrirspurn Guðrúnar Ögmundsdóttur um jafnréttisfræðslu o.fl. í grunn- og framhaldsskólum.
1. Í hvaða skólum og á hvaða skólastigum er veitt fræðsla um jafnréttismál?
Menntamálaráðherra setur leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum aðalnámskrár, sbr. lög um þessi skólastig. Í aðalnámskrám er kveðið nánar á um meginstefnu í kennslu og kennsluskipan. Í jafnréttisstefnu ráðuneytisins, sem lögð var til grundvallar við endurskoðun aðalnámskráa fyrir grunn- og framhaldsskóla 1999, kemur fram að stuðla skuli að jafnrétti til náms með því að bjóða nemendum nám og kennslu við hæfi og gefa þeim tækifæri til að spreyta sig á viðfangsefnum að eigin vali. Í þessu felast ekki endilega sömu úrræði fyrir alla heldur sambærileg og jafngild tækifæri. Verkefnin skulu höfða jafnt til drengja og stúlkna, nemenda í dreifbýli sem þéttbýli og fatlaðra sem ófatlaðra. Mikilvægt er að bæði piltum og stúlkum séu kynnt störf sem hingað til hefur verið litið á sem hefðbundin karla- eða kvennastörf. Menntamálaráðuneytið leggur áherslu á að skólar búi bæði kynin undir þátttöku í atvinnulífi, fjölskyldulífi og í samfélaginu. Eitt mikilvægasta úrlausnarefni skóla og skólayfirvalda í þessu sambandi er að finna leiðir til að koma til móts við ólíka getu og ólík áhugamál nemenda.
Fræðsla um jafnrétti er samofin markmiðum í aðalnámskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla frá 1999, bæði í almennum hluta þeirra og í hverri greinanámskrá fyrir sig þó að sérstök áhersla sé lögð á jafnréttismiðuð markmið í námskrá í lífsleikni á öllum skólastigum. Auk almennra ákvæða um jafnrétti til náms og skóla án aðgreiningar er að finna ákvæði um að kennsluaðferðir megi ekki mismuna nemendum eftir kynferði, búsetu, uppruna, litarhætti, fötlun, trúarbrögðum og félagslegri stöðu. Markmiðið er ekki að kenna öllum hið sama heldur að nemendur öðlist trausta undirstöðu á þeim námssviðum sem þeir velja. Í þessu skyni er nemendum til dæmis gefinn kostur á ólíkum námsáherslum í efstu bekkjum grunnskólans.
Aðalnámskrá setur skólum almenn viðmið í kennslu en það er hins vegar skólanna að útfæra þau nánar í samræmi við stefnu skólans, sérstöðu og þá kennsluhætti sem skólinn aðhyllist. Á þetta við bæði um grunn- og framhaldsskóla. Nú stendur yfir endurskoðun á aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla í tengslum við breytta námskipan til stúdentsprófs, en ekki er gert ráð fyrir að hróflað verði við þeim grundvallarmarkmiðum jafnréttis sem skýrð eru hér að framan, heldur verði þau styrkt.
Samhliða útgáfu námskráa árið 1999 gaf menntamálaráðuneytið út bækling um jafnréttismál sem dreift var í skóla. Bæklingnum var ætlað að vekja kennara og skólafólk til umhugsunar um lögbundið jafnrétti kynjanna til menntunar.
2. Hefur verið gerð úttekt á námskrám og kennslubókum í grunn- og framhaldsskólum með hliðsjón af jafnréttislögum? Ef svo er, hvenær?
Eins og fram kemur í svari við 1. spurningu eru jafnréttissjónarmið höfð að leiðarljósi við námskrárgerð á öllum skólastigum og var þess vandlega gætt við lokafrágang á endurskoðun aðalnámskráa 1999. Ekki hefur verið gerð bein úttekt á framkvæmd námskránna á sviði jafnréttisfræðslu, en markmiðin eru skýr. Nemendum er ætlað að rækta með sér samkennd, samhygð og virðingu fyrir skoðunum og lífsgildum annarra til að geta átt auðug og gefandi samskipti við einstaklinga óháð kyni, kynferði, þjóðerni, trú og líkamlegu og andlegu atgervi. Nemandi á að vera meðvitaður um gildi jafnréttis og hvernig það tengist mannréttindum. Hann á að vera fær um að hafa jafnrétti að leiðarljósi í öllum samskiptum.
Hvað varðar útgáfu námsefnis tekur Námsgagnastofnun mið af jafnréttisákvæðum aðalnámskrár, bæði vegna útgáfu almenns námsefnis og sérstaks námsefnis um jafnréttismál. Í gátlista stofnunarinnar sem settur er til viðmiðunar fyrir námsefnishöfunda við námsgagnagerð kemur eftirfarandi fram:
– Námsefni skal stuðla að mannréttindum og jafnrétti manna. Það skal vera laust við fordóma, t.d. vegna búsetu, fötlunar, kyns, kynhneigðar, kynþáttar, stéttar eða trúarbragða. Leitast skal við að vinna gegn hvers konar viðhorfum sem hvetja til misréttis eða viðhalda því.
– Forðast ber að mismuna kynjum eða fjalla með einhliða hætti um hlutverk kynjanna. Leitast skal við eftir megni að ámóta fjöldi dæma sé tekinn af hvoru kyni, að áhugamálum beggja kynja sé gert jafnhátt undir höfði og að drengir og stúlkur séu ekki eingöngu sýnd í svokölluðum hefðbundnum kynjahlutverkum.
Námsefni sem Námsgagnastofnun hefur gefið út þar sem fjallað er um jafnrétti að hluta eða að öllu leyti:
Jafnréttishandbókin (útg. 2000).
Höf. Hafsteinn Karlsson og Stefanía Traustadóttir.
Sagan af Sylvíu og Darra – leikin mynd (útg. 2000).
Ég er bara ég (útg. 2000) – ásamt kennsluleiðbeiningum á vef.
Höf. Ásdís Olsen og Karl Ágúst Úlfsson.
Kynlega klippt og skorið (útg. 2001).
Höf. Ásdís Olsen og Karl Ágúst Úlfsson.
Leið þín um lífið – Siðfræði fyrir ungt fólk (útg. 2002).
Þýtt úr þýsku.
Þjóðfélagsfræði (útg. 2001).
Höf. Garðar Gíslason.
Lífsgildi og ákvarðanir – kynfræðsla (útg. 1991).
Þýtt úr ensku.
Margt er um að velja – náms og starfsfræðsla á vef (útg. 2004).
Berglind Helga Sigurþórsdóttir og Helga Helgadóttir.
Réttindi mín, 1.–3. hefti – um barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna (útg. 1994).
Borgaravitund og lýðræði – námsefni á vef (útg. 2005).
3. Í hvaða skólum og á hvaða skólastigum er veitt fræðsla um barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna?
Árið 1994 gaf Námsgagnastofnun út þrjár bækur, Réttindi mín, sem fjalla um barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Einnig voru gefnar út kennsluleiðbeiningar fyrir kennara í grunn- og framhaldsskólum um hvernig best væri að haga kennslu um barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Bækurnar taka mið af aldri og þroska nemenda þannig að fyrsta bókin er ætluð yngstu nemendunum, önnur bókin nemendum á miðstigi og sú þriðja, sem birtir samninginn í heild, er ætluð börnum og unglingum til 18 ára aldurs. Bækurnar hafa verið endurprentaðar tvisvar sinnum, önnur prentun 1994 og sú þriðja 1996.
Barnasáttmálinn er einnig lagður til grundvallar í námskrá í lífsleikni. Í námskrá í lífsleikni í grunn- og framhaldsskólum er að finna jafnréttismiðuð markmið sem beinlínis og óbeinlínis stuðla að því að styrkja einstaklinginn og að hann öðlist samfélagslega yfirsýn til þess að geta betur tekist á við áskoranir daglegs lífs í framtíðinni.
Ráðuneytið hefur á þessu ári tekið þátt í verkefni Evrópuráðsins um borgaravitund og lýðræði í skólastarfi en verkefnið byggir m.a. á barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og samþykktum Evrópuráðsins um lýðræði, borgaravitund og mannréttindi. Meginmarkmið verkefnisins er m.a. að vekja athygli á mikilvægi þessa í skólastarfi. Í yfirstandandi endurskoðun á aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla í lífsleikni liggja fyrir tillögur um að styrkja markmið um borgaravitund og lýðræði og jafnrétti. Meginmarkmiðið er að auka færni ungs fólks og fullorðinna til að verða virkir þátttakendur í lýðræðislegu samfélagi. Er það í samræmi við almenna áherslu á lýðræði og borgaravitund í skólastarfi bæði hér á landi og í nágrannalöndum.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 567 — 146. mál.
Svar