Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 112. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 568 — 112. mál.
menntamálaráðherra við fyrirspurn Björgvins G. Sigurðssonar um nemendaráð í grunnskólum.
1. Hvernig er starfsemi nemendaráða háttað í grunnskólum?
Samkvæmt 17. gr. gildandi grunnskólalaga er nemendum grunnskóla heimilað að stofna nemendaráð sem vinni m.a. að félags-, hagsmuna- og velferðarmálum þeirra. Skólastjóri skal fela einum af kennurum skólans að aðstoða nemendaráð. Í lögunum kemur fram að nemendaráð hvers skóla skuli setja sér starfsreglur. Í grunnskólalögum segir einnig að skólastjóri skuli a.m.k. tvisvar á ári boða til sameiginlegs fundar kennararáðs, foreldraráðs og nemendaráðs til þess að veita upplýsingar um skólastarfið og fjalla um málefni þessara ráða.
Menntamálaráðuneytið hefur ekki gert sérstaka könnun á því með hvaða hætti starfsemi nemendaráða er háttað í grunnskólum enda er ábyrgð á rekstri grunnskóla í höndum sveitarfélaga og einungis um heimildarákvæði að ræða í lögunum en þess má geta að umboðsmaður barna kannaði starfshætti nemendaráða í grunnskólum skólaárið 1995–1996. Þar sem engar breytingar hafa verið gerðar síðan á lagalegum grunni nemendaráða má ætla að starfsemi nemendaráða sé víðast með svipuðum hætti og þá var. Í niðurstöðum könnunar umboðsmanns barna kom fram að algengast er að nemendaráð séu 5–7 manna með fulltrúum nemenda af unglingastigi, þ.e. þremur elstu árgöngum grunnskólans, 8.–10. bekk. Í flestum tilvikum starfaði kennari með nemendaráðinu eða íþrótta- og tómstundafulltrúi skólans. Fram kom að meira en helmingur nemendaráða sagðist ekki starfa samkvæmt neinum formlegum starfsreglum. Langalgengast var að nemendaráðið hittist 2–4 sinnum í mánuði. Algengustu viðfangsefni nemendaráðanna voru félagslegs eðlis, þ.e. skemmtikvöld, böll, árshátíðir, ferðalög, blaðaútgáfa og fræðsla til nemenda. Fram kom að nokkur nemendaráð skiptu sér af sérstökum hagsmunamálum nemenda, t.d. aðbúnaði í skólanum, ágreiningi við kennara eða stjórnendur skóla, eineltismálum og skólamáltíðum. Hins vegar kom fram að langflest nemendaráð unnu ekkert að slíkum hagsmunamálum nemenda. Fram kom áhugi hjá nemendaráðunum á að efla þau innan skólans og einnig áhugi á samstarfi nemendaráða innan sveitarfélagsins.
Menntamálaráðuneytinu er kunnugt um að á undanförnum árum hefur starfsemi nemendaráða í grunnskólum víða eflst og einnig samstarf þeirra innan sveitarfélaga, en ekki liggja fyrir nýlegar upplýsingar um heildaryfirlit yfir starfsemi ráðanna. Þá hafa sum sveitarfélög stofnað sérstök ungmennaráð og leitað eftir þátttöku fulltrúa nemendaráða grunnskóla. Sveitarfélög hafa með þessu móti skapað vettvang fyrir fulltrúa nemendaráða í grunnskólum til að fjalla um ýmis málefni ungmenna.
Í tengslum við endurskoðun á grunnskólalögum að undanförnu hefur verið til skoðunar að gera nemendaráð að lagaskyldu í grunnskólum og ætla þeim aukið hlutverk, ekki síst þar sem aukin áhersla er á lýðræðislega starfshætti skóla. Einnig má geta þess að árið 2005 er Evrópuár um borgaravitund og lýðræði í skólastarfi sem Íslendingar taka þátt í af fullum krafti og hafa ýmis verkefni verið unnin innan skóla og sveitarfélaga af því tilefni.
2. Hverjir eiga rétt á sæti í þeim?
Ekki er tilgreint í gildandi grunnskólalögum hverjir eigi rétt á sæti í nemendaráðum, en skv. 17. gr. laganna er nemendum grunnskóla heimilað að stofna nemendaráð sem vinni m.a. að félags-, hagsmuna- og velferðarmálum þeirra. Í lögunum segir ekkert um fjölda fulltrúa í nemendaráðum og því er það alfarið í höndum einstakra skóla að útfæra slíkt í starfsreglum sem setja á í hverjum skóla. Ekki er tilgreint í lögunum um aldur fulltrúa í nemendaráðum, en rík hefð er fyrir því að nemendaráð grunnskóla sé skipað fulltrúum í þremur elstu árgöngunum, þ.e. 8.–10. bekk. Ráðuneytinu er þó kunnugt um að yngri nemendur sitji í nemendaráðum en það er ekki algengt.
3. Fulltrúar hverra sitja í slíkum ráðum, skipt eftir grunnskólum?
Menntamálaráðuneytið hefur ekki upplýsingar um hverjir sitja í nemendaráðum, skipt eftir grunnskólum, og hefur ekki aflað slíkra upplýsinga.
4. Hvernig er eftirliti með starfsemi ráðanna háttað?
Menntamálaráðuneytið hefur ekki eftirlit með starfsemi nemendaráða í grunnskólum. Skólastjórar í grunnskólum hafa alla jafna eftirlit með starfsemi nemendaráða og hugsanlega skólaskrifstofur sveitarfélaga. Einnig hefur umboðsmaður barna fylgst með starfsemi nemendaráða og kannað starfsemi þeirra, þótt það geti ekki flokkast undir formlegt eftirlit.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 568 — 112. mál.
Svar