Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 408. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 583 — 408. mál.
um stofnun endurhæfingarseturs.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að koma á fót endurhæfingarsetri og skoða m.a. möguleika á samstarfi við bæjaryfirvöld í Kópavogi um uppbyggingu slíks seturs á landi gamla Kópavogsbýlisins.
Þingsályktunartillaga þessi var lögð fram á 131. löggjafarþingi og er nú endurflutt lítið breytt. Tilgangur hennar er að efla enn frekar endurhæfingu og hæfingu fatlaðra, langveikra og þeirra sem greinst hafa með alvarlega sjúkdóma og stuðla að uppbyggingu á lóð gamla holdsveikraspítalans í Kópavogi.
Endurhæfing fatlaðra og einstaklinga sem hafa fengið alvarlega sjúkdóma, sem og hæfing mikið fatlaðra, hefur mikið gildi hvort heldur er fyrir einstaklinginn sjálfan, fjölskyldu hans eða þjóðarbúið. Þörfin fyrir fjölbreytta endurhæfingu og hæfingu heldur áfram að aukast og má rekja það til fjölmargra þátta, m.a. til aukinnar læknisfræðilegrar þekkingar og tækni, sem hafa bætt lífslíkur fyrirbura og þeirra sem verða fyrir alvarlegum slysum eða greinast með alvarlega sjúkdóma. Meðfædd fötlun kallar oft á ævilanga þjálfun og hæfingu og álagið á fjölskyldur mikið fatlaðra barna er mikið. Endurhæfing ungs fólks, sem af ýmsum ástæðum hefur hætt skólagöngu og fótar sig ekki í daglegu lífi, er ekki síður mikilvæg. Fjöldi aldraðra sem þarfnast endurhæfingar vex samhliða hækkandi aldri þjóðarinnar. Þeir sem þurfa á endurhæfingu og hæfingu að halda til lengri tíma eru því mjög breiður hópur með ólíkar þarfir.
Skilningur og virðing fyrir þörfum fólks sem nýtur líknarmeðferðar fer stöðugt vaxandi og þar með viðurkenning á rekstri sérstakra líknardeilda. Rólegt og fallegt umhverfi hefur jákvæð áhrif á líðan þessara sjúklinga og aðstandenda þeirra og skiptir staðsetning líknardeilda því miklu máli.
Með þingsályktunartillögu þessari er lagt til að ríkisstjórninni verði falið að standa að stofnun endurhæfingarseturs, þ.e. blandaðri þjónustu fyrir fatlaða, langveika og þá sem greinst hafa með alvarlega sjúkdóma, t.d. krabbamein. Það er mikilvægt að hafa hugfasta nauðsyn fjölbreytilegra úrræða og setur af þessu tagi mundi auka möguleika til eflingar og nýbreytni á sviði endurhæfingar. Hugtakið „setur“ vísar til starfsemi á ákveðnu sviði en möguleika á mismunandi rekstri. Núverandi starfsemi er fjölbreytt og á ábyrgð bæði ríkis og sveitarfélaga.
Landspítali – háskólasjúkrahús (LSH) tók við fasteignum Kópavogshælisins þegar það var lagt niður og á flestar þeirra í dag. Með stofnun endurhæfingarseturs þarf að meta þörf LSH á húsnæði fyrir þá starfsemi sem ætluð er til framtíðar á vegum sjúkrahússins og gera viðhlítandi ráðstafanir varðandi það húsnæði sem nýtist LSH ekki. Nú eru á svæðinu þrjár legudeildir fyrir fatlaða ásamt húðdeild og líknardeild á vegum LSH, Endurhæfing ehf., Rjóðrið og Fjölsmiðjan.
Endurhæfing ehf. er einkarekin iðju- og sjúkraþjálfun fyrir fatlaða, sem tók við endurhæfingu fjölfatlaðra af LSH í Kópavogi á vordögum 2004. Að rekstri Endurhæfingar ehf. standa fyrrverandi starfsmenn endurhæfingardeildar LSH.
Rjóðrið, hvíldar- og endurhæfingarheimili langveikra barna, er samstarfsverkefni heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis, Íslenskrar erfðagreiningar og LSH. Rekstur heimilisins byggist á hvíldarinnlögn fatlaðra og langveikra barna í heimahúsum ásamt foreldrum, en einnig endurhæfingu og framhaldi af vistun á barnaspítala LSH. Mikil þörf er á svipaðri þjónustu fyrir mikið fötluð eða langveik ungmenni eldri en 18 ára og fjölskyldur þeirra.
Fjölsmiðjan er samstarfsverkefni félagsmálaráðuneytis (Vinnumálastofnunar), Rauða kross Íslands, sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og menntamálaráðuneytis. Fjölsmiðjunni er ætlað að starfrækja verkþjálfunar- og framleiðslusetur fyrir ungt fólk á aldrinum 16–24 ára sem hætt hefur námi og ekki fótað sig á vinnumarkaði. Markmiðið er að bjóða fjölþætta verkþjálfun og fræðslu þannig að nemarnir geti fundið áhugavert starf þar sem hæfileikar þeirra nýtast eða tíminn nýtist sem forvinna að frekara skólanámi. Starfsemin fer að mestu fram í gamla Iðjuhúsinu sem Fjölsmiðjan leigir af LSH.
Um tveggja ára skeið var rekin göngudeild í Kópavogi með sérhæfðri krabbameinsendurhæfingu. Starfsemin hefur verið flutt til innan LSH vegna skipulagsbreytinga og í sparnaðarskyni. Mikil ánægja ríkti meðal skjólstæðinga göngudeildarinnar og voru vonir bundnar við frekari uppbyggingu á þessu sviði, svo sem rekstur dagdeildar, en mikil þörf er á slíkri þjónustu. Með starfi göngudeildarinnar var unnið brautryðjendastarf sem samræmdist vel starfsemi háskólasjúkrahúss. Þverfagleg vinna og metnaðarfullt starf hafði góð áhrif á líðan skjólstæðinga deildarinnar. Sérstök ánægja var með staðsetningu göngudeildarinnar svo og aðstöðu til sjúkraþjálfunar, sérstaklega sundlaugina. Flutningsmaður telur að huga eigi að áframhaldandi þjónustu við krabbameinssjúklinga af þessu tagi í tengslum við stofnun endurhæfingarseturs. Staðsetningin og umhverfið allt getur stuðlað að árangursríkri meðferð. Mikil þörf er á verulegum úrbótum fyrir krabbameinssjúklinga og nefna má að unnið er að stofnun miðstöðvar fyrir iðjuþjálfun, upplýsingar og þjónustu fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess. Hugmyndin er byggð á sambærilegum miðstöðvum í Danmörku og er verið að leita að hentugu húsnæði undir starfsemina.
Fyrirhuguðu skipulagi á miðhluta Kópavogstúns hefur verið frestað, m.a. vegna athugasemda frá LSH, og verður sú starfsemi sem fram fer á þessu svæði óbreytt. Samstarf um aðra landnýtingu og deiliskipulag þarf því að fara fljótt í gang ef hugmyndir um endurhæfingarsetur á svæðinu eiga fram að ganga. Sú starfsemi sem nú þegar er á svæðinu er mjög brýn og þörf er á frekari þjónustu á flestum sviðum starfseminnar. Má þar sérstaklega nefna sjúkra- og iðjuþjálfunina, starfsemi Rjóðursins og síðast en ekki síst brýna nauðsyn á að koma á fót öflugri og fjölbreyttri endurhæfingu fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein.
Kópavogsbær hefur fest kaup á húsnæði gamla holdsveikraspítalans og er mat flutningsmanns að huga eigi að verndun hússins vegna sögulegs gildis, aldurs þess og sem hluta af höfundarverki Guðjóns Samúelssonar arkitekts.
Þegar holdsveikraspítalinn, eða heilsuhælið í Kópavogi eins og það kallaðist áður, var reistur á sínum tíma var honum valinn staður í rólegu umhverfi en nærri höfuðborginni. Staðsetningin býður enn upp á rólegt og fallegt umhverfi með góðar almenningssamgöngur, takmarkaða bílaumferð en góða tengingu við göngu- og hjólastíga. Þessar aðstæður henta mjög vel núverandi starfsemi og nauðsynlegt er að hafa þær til hliðsjónar við uppbyggingu endurhæfingarseturs. Slíkar vinjar hafa horfið með þéttingu byggðarinnar á öllu höfuðborgarsvæðinu.
Breyttar áherslur í geðheilbrigðisþjónustu, þ.e. að hverfa frá stofnanaþjónustu og innlögnum sjúklinga, falla vel að hugmyndinni um endurhæfingarsetur með fjölbreyttri starfsemi. Miðstöð sjálfseflingar og fræðslu fyrir geðsjúklinga og aðstandendur þeirra, sérstaklega fólks á höfuðborgarsvæðinu, mundi styrkja samfélagsþjónustu á þessu sviði.
Uppbygging endurhæfingarseturs þar sem sambærileg starfsemi er fyrir eykur öryggi sjúklinga og gæði þeirrar þjónustu sem veita á. Endurhæfingarsetur býður upp á nýjar leiðir til að samþætta heilbrigðis- og félagsþjónustu auk óhefðbundinna leiða til menntunar. Endurhæfingarsetur býður einnig upp á möguleika á samvinnu í þverfaglegri vinnu milli stofnana á svæðinu.
Með starfsemi endurhæfingarseturs væri hægt að byggja upp fjölbreytta endurhæfingu fyrir fatlaða og þá sem hafa fengið alvarlega sjúkdóma ásamt hæfingu fyrir þá sem verst eru settir og falla ekki alfarið undir ákveðna sjúkdómsgreiningu eða félagslega þjónustu. Langtímameðferð í rólegu umhverfi án áreitis er mikilvæg fyrir þá sem þurfa á hæfingu að halda. Þannig má stuðla að því að þeim fari ekki aftur. Öryrkjum hefur fjölgað mjög síðustu ár og er nauðsynlegt að vinna að því að byggja upp endurhæfingu vegna skertrar vinnufærni og koma fólki til heilsu á ný. Því yngri sem öryrkinn er, því mikilvægari er endurhæfing til atvinnu og þátttöku í daglegu lífi.
Flutningsmaður telur að verkefnið sé kjörið samvinnuverkefni heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og menntamálaráðuneytis og að þannig megi ná bestum árangri í að byggja upp sterkt hæfingar- og endurhæfingarsetur. Reynslan af slíku verkefni mundi nýtast vel í nauðsynlegri uppbyggingu á fjölbreyttri endurhæfingu í tengslum við stærri sjúkrahús úti um land sem byggjast á þverfaglegum grunni og samnýta þá sérfræðiþekkingu sem er til staðar.
Fylgiskjal I.
Fyrir tveimur árum keypti Kópavogsbær hluta af landi Kópavogshælisins af ríkinu og í kjölfarið var efnt til samkeppni meðal arkitekta um deiliskipulag svæðisins. Benjamín Magnússon arkitekt vann þá samkeppni og samkvæmt tillögum hans fellur gamla holdsveikrahælið á lóðinni að því skipulagi.
Húsið er hið merkilegasta, teiknað af Guðjóni Samúelssyni arkitekt, en það var kvenfélagið Hringurinn sem stóð að byggingu þess árið 1926. Þá var það hugsað sem hressingarhæli fyrir berklasjúklinga í Kópavogi. Á hælinu voru rúm fyrir 24 sjúklinga en upphaflega var ætlunin að vista þar einkum sjúklinga í afturbata, sem höfðu ekki náð fullri heilsu og þoldu ekki erfiðisvinnu. Vegna skorts á aðstöðu fyrir berklasjúklinga varð Kópavogshæli almennt berklahæli, líkt og Vífilsstaðir og Kristnes. Þegar herinn kom til landsins árið 1940 tók hann holdsveikraspítalann í Laugarnesinu til eigin nota og sjúklingar þar voru vistaðir á berklahælinu. Þeir sem voru í Kópavoginum voru ýmist fluttir á Kristnesspítala eða Vífilsstaði. Síðustu holdsveikisjúklingarnir létust árið 1970 og síðan hefur lítil starfsemi verið í húsinu.
Benjamín segir enn of snemmt að segja til um örlög hússins. „Í þeirri tillögu sem ég lagði fram á sínum tíma er gert ráð fyrir að þetta hús muni standa áfram. Það eru hins vegar fleiri aðilar sem koma að þeirri ákvörðun og meta hvað er skynsamlegt að gera. Húsið hefur staðið ónotað um árabil og það er töluverð vinna að gera það upp. Í mínum drögum var eingöngu gert ráð fyrir þeim möguleika að húsið gæti staðið áfram, en ekki í hvaða samhengi. Það er yfirvalda að taka ákvörðun um það og ætla húsinu eitthvert hlutverk í framtíðinni.“
Fylgiskjal II.
Stjórn Íbúasamtaka Vesturbæjar Kópavogs hefur áhyggjur af breytingum í í bæjarhlutanum sem Kópavogsbær ætlar að ráðast í. Á aðalfundi samtakanna, sem haldinn verður í Kársnesskóla klukkan átta í kvöld, stendur til að ræða sérstaklega skipulagsmál á Kópavogstúni og í Vesturbæ Kópavogs.
Stjórn íbúasamtakanna segir fyrirhugað er að fjölga íbúum í Vesturbænum um 3.000 manns og leggja af stóran hluta atvinnustarfsemi á Kársnesinu og harmar hversu litlar umræður hafi orðið um fyrirætlanir bæjarins. Pétur Eysteinsson, formaður íbúasamtakanna, segir áherslu verða lagða á að fá framlengdan umsagnarfrest fram yfir fyrirhugað íbúaþing í bænum í haust. „Þannig geta íbúarnir fengið að tjá sig um þetta á eðlilegan hátt,“ segir hann og telur auglýsingatíma frá seinni hluta júlí og fram í seinni hluta þessa mánaðar ekki vera nægan. Frestur til að skila inn athugasemdum vegna skipulagsins rennur út á morgun. „Svona stórt mál þar sem gjörbreytt er öllum umferðarstefnum um bæinn og fjarlægð jafnmikil starfsemi og er hjá Landspítalanum þarna niður frá og nýbúið að ákveða bryggjuhverfi kallar eiginlega á að fólk fái að ræða og melta þessa hluti betur. Það er frumkrafan að meiri tími fáist til að ræða hlutina.“ Pétur segir marga uggandi um framtíð líknardeildar Landspítalans og telur skrítið að bærinn hafi forystu um flutning þeirrar starfsemi frá Kópavogstúni.
Gunnsteinn Sigurðsson, formaður skipulagsnefndar Kópavogsbæjar, vísar gagnrýni íbúasamtakanna á bug og segir auglýsingaferli vegna skipulagsins samkvæmt bæði lögum og venjum. „Til viðbótar var svo skipulag við Kópavogstúni tekið til sérstakrar kynningar fyrir rúmu ári síðan, áður en það var fullunnið. Við höfum farið þá leið að funda með íbúum áður en breytingar eru auglýstar formlega,“ segir hann og telur vel hafa verið staðið að kynningu hugmynda að skipulagsbreytingum. „Það má alltaf deila um alla hluti en okkar markmið hefur verið að halda íbúunum vel upplýstum.“ Þá segir Gunnsteinn skipulagshugmyndina á Kópavogstúni gera ráð fyrir að mörg húsanna sem þar eru fyrir geti staðið áfram. „Það er ekkert verið að hrekja Landspítalann í burtu.“
Fylgiskjal III.
Starfsemi verður áfram í ríkisbyggingum á Kópavogstúni í nokkur ár. Því hefur skipulagi þess verið breytt og tekur það aðeins til lands Kópavogs á svæðinu, að sögn Gunnars Birgissonar bæjarstjóra.
Á bæjarstjórnarfundi fyrr í vikunni var felld tillaga Samfylkingarinnar um að fresta endanlegri ákvarðanatöku um skipulag Kópavogstúns fram yfir væntanlegt íbúaþing í haust. Gunnar Birgisson segir að athugasemdir hafi borist við auglýstri tillögu að deiliskipulagi. Málið sé í vinnslu hjá skipulagsnefndinni og gert sé ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki síðar í mánuðinum.
Gunnar segir að þegar Kópavogur hafi keypt landið fyrir um tveimur og hálfu ári hafi verið gengið út frá því að starfsemi ríkisins á svæðinu færi í burtu á næstu fimm til tíu árum. Svæðið hafi verið skipulagt til framtíðar með það í huga en nú hafi orðið breyting á. Kvennafangelsið fari sennilega þegar nýtt fangelsi verði byggt, en líknardeildin, Rjóður, Fjölsmiðjan og sambýlin verði í núverandi húsnæði á svæðinu í jafnvel tíu til fimmtán ár til viðbótar. Byggingarnar í miðju landinu verði því áfram og því hafi þurft að breyta skipulaginu. Fyrir bragðið fækki íbúum verulega frá auglýstu deiliskipulagi enda aðeins byggt í landi Kópavogs til að byrja með.
Að sögn Gunnars er meðal annars gert ráð fyrir 44 sérbýlum og 160 til 180 íbúðum í fjölbýli á Kópavogstúni. Að þeim meðtöldum hafi Kópavogur úthlutað 450 sérbýlum á árunum 2002 til 2005 en Reykjavík 309 sérbýlum. Á sama tíma hafi um 1.700 fjölbýlisíbúðum verið úthlutað í Kópavogi en um 1.200 í Reykjavík.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 583 — 408. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um stofnun endurhæfingarseturs.
Flm.: Þuríður Backman.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að koma á fót endurhæfingarsetri og skoða m.a. möguleika á samstarfi við bæjaryfirvöld í Kópavogi um uppbyggingu slíks seturs á landi gamla Kópavogsbýlisins.
Greinargerð.

Hvað verður um gamla holdsveikraspítalann?
(Fréttablaðið, 21. febrúar 2005.)
Fyrir tveimur árum keypti Kópavogsbær hluta af landi Kópavogshælisins af ríkinu og í kjölfarið var efnt til samkeppni meðal arkitekta um deiliskipulag svæðisins. Benjamín Magnússon arkitekt vann þá samkeppni og samkvæmt tillögum hans fellur gamla holdsveikrahælið á lóðinni að því skipulagi.
Húsið er hið merkilegasta, teiknað af Guðjóni Samúelssyni arkitekt, en það var kvenfélagið Hringurinn sem stóð að byggingu þess árið 1926. Þá var það hugsað sem hressingarhæli fyrir berklasjúklinga í Kópavogi. Á hælinu voru rúm fyrir 24 sjúklinga en upphaflega var ætlunin að vista þar einkum sjúklinga í afturbata, sem höfðu ekki náð fullri heilsu og þoldu ekki erfiðisvinnu. Vegna skorts á aðstöðu fyrir berklasjúklinga varð Kópavogshæli almennt berklahæli, líkt og Vífilsstaðir og Kristnes. Þegar herinn kom til landsins árið 1940 tók hann holdsveikraspítalann í Laugarnesinu til eigin nota og sjúklingar þar voru vistaðir á berklahælinu. Þeir sem voru í Kópavoginum voru ýmist fluttir á Kristnesspítala eða Vífilsstaði. Síðustu holdsveikisjúklingarnir létust árið 1970 og síðan hefur lítil starfsemi verið í húsinu.
Benjamín segir enn of snemmt að segja til um örlög hússins. „Í þeirri tillögu sem ég lagði fram á sínum tíma er gert ráð fyrir að þetta hús muni standa áfram. Það eru hins vegar fleiri aðilar sem koma að þeirri ákvörðun og meta hvað er skynsamlegt að gera. Húsið hefur staðið ónotað um árabil og það er töluverð vinna að gera það upp. Í mínum drögum var eingöngu gert ráð fyrir þeim möguleika að húsið gæti staðið áfram, en ekki í hvaða samhengi. Það er yfirvalda að taka ákvörðun um það og ætla húsinu eitthvert hlutverk í framtíðinni.“
Fylgiskjal II.
Óttast um framtíð líknardeildar.
(Fréttablaðið, 23. ágúst 2005.)
Stjórn Íbúasamtaka Vesturbæjar Kópavogs hefur áhyggjur af breytingum í í bæjarhlutanum sem Kópavogsbær ætlar að ráðast í. Á aðalfundi samtakanna, sem haldinn verður í Kársnesskóla klukkan átta í kvöld, stendur til að ræða sérstaklega skipulagsmál á Kópavogstúni og í Vesturbæ Kópavogs.
Stjórn íbúasamtakanna segir fyrirhugað er að fjölga íbúum í Vesturbænum um 3.000 manns og leggja af stóran hluta atvinnustarfsemi á Kársnesinu og harmar hversu litlar umræður hafi orðið um fyrirætlanir bæjarins. Pétur Eysteinsson, formaður íbúasamtakanna, segir áherslu verða lagða á að fá framlengdan umsagnarfrest fram yfir fyrirhugað íbúaþing í bænum í haust. „Þannig geta íbúarnir fengið að tjá sig um þetta á eðlilegan hátt,“ segir hann og telur auglýsingatíma frá seinni hluta júlí og fram í seinni hluta þessa mánaðar ekki vera nægan. Frestur til að skila inn athugasemdum vegna skipulagsins rennur út á morgun. „Svona stórt mál þar sem gjörbreytt er öllum umferðarstefnum um bæinn og fjarlægð jafnmikil starfsemi og er hjá Landspítalanum þarna niður frá og nýbúið að ákveða bryggjuhverfi kallar eiginlega á að fólk fái að ræða og melta þessa hluti betur. Það er frumkrafan að meiri tími fáist til að ræða hlutina.“ Pétur segir marga uggandi um framtíð líknardeildar Landspítalans og telur skrítið að bærinn hafi forystu um flutning þeirrar starfsemi frá Kópavogstúni.
Gunnsteinn Sigurðsson, formaður skipulagsnefndar Kópavogsbæjar, vísar gagnrýni íbúasamtakanna á bug og segir auglýsingaferli vegna skipulagsins samkvæmt bæði lögum og venjum. „Til viðbótar var svo skipulag við Kópavogstúni tekið til sérstakrar kynningar fyrir rúmu ári síðan, áður en það var fullunnið. Við höfum farið þá leið að funda með íbúum áður en breytingar eru auglýstar formlega,“ segir hann og telur vel hafa verið staðið að kynningu hugmynda að skipulagsbreytingum. „Það má alltaf deila um alla hluti en okkar markmið hefur verið að halda íbúunum vel upplýstum.“ Þá segir Gunnsteinn skipulagshugmyndina á Kópavogstúni gera ráð fyrir að mörg húsanna sem þar eru fyrir geti staðið áfram. „Það er ekkert verið að hrekja Landspítalann í burtu.“
Fylgiskjal III.
Skipulagt í kringum ríkisbyggingarnar.
(Morgunblaðið, 18. september 2005.)