Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 305. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 633  —  305. mál.




Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Kjartans Ólafssonar um íbúðabyggingar.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu mörgum lóðum hafa sveitarfélögin úthlutað undir íbúðir árin 2000–2005, sundurliðað eftir árum og sveitarfélögum?
     2.      Hversu margar íbúðir hafa verið fullgerðar sömu ár, sundurliðað eftir árum og sveitarfélögum?


    Aflað var upplýsinga frá sveitarfélögum, Hagstofu Íslands og Fasteignamati ríkisins.
    Enginn opinber aðili hefur það hlutverk samkvæmt lögum að safna upplýsingum um fjölda lóðaúthlutana sveitarfélaga og þær upplýsingar liggja ekki fyrir. Ráðuneytið sendi fyrirspurn um lóðaúthlutun á árunum 2000–2005 til þeirra sveitarfélaga þar sem flestar íbúðir voru byggðar á árunum 2000–2004 samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins. Svar barst frá 17 af 21 sveitarfélagi og koma upplýsingar um lóðaúthlutun þeirra miðað við fjölda íbúða fram í töflu 1. Upplýsingar bárust ekki frá Grindarvíkurkaupstað, Hveragerðisbæ, Sveitarfélaginu Garði og Sveitarfélaginu Skagafirði.

Tafla 1. Fjöldi úthlutaðra lóða miðað við íbúðafjölda á árunum 2000–2005.


2000 2001 2002 2003 2004 2005 Samtals 2000–2005
Reykjavíkurborg 425 482 422 666 428 606 3.029
Kópavogsbær 0 3 211 486 872 1.292 2.864
Hafnarfjarðarkaupstaður 101 105 261 243 1.305 473 2.488
Akureyrarkaupstaður 170 88 148 87 304 656 1.453
Garðabær 32 41 0 779 0 30 882
Sveitarfélagið Árborg 76 71 147
Mosfellsbær 222 0 0 122 111 199 654
Reykjanesbær 30 14 16 38 130 226 454
Sveitarfélagið Álftanes 0 0 0 0 0 0 0
Akraneskaupstaður 51 10 55 59 81 183 439
Fljótsdalshérað 4 6 25 65 38 71 209
Borgarbyggð 0 3 0 0 5 96 104
Rangárþing ytra 7 9 15 8 21 24 84
Fjarðabyggð 0 0 30 158 190 105 483
Sveitarfélagið Ölfus 12 18 8 18 73 129
Sandgerðisbær 18 8 1 15 30 126 198
Rangárþing eystra 3 14 29 46
Samtals 1.060 781 1.202 2.737 3.623 4.260 13.663

    Upplýsingar um fjölda fullgerðra íbúða eftir sveitarfélögum liggja ekki fyrir en Hagstofa Íslands birtir upplýsingar um fjölda fullgerðra íbúða á öllu landinu og voru þær samtals 9.775 á árunum 2000–2004. Skiptingin er sem hér segir eftir árum:
Ár Fjöldi íbúða
2000 1.258
2001 1.711
2002 2.140
2003 2.311
2004 2.355

    Fasteignamat ríkisins birtir hins vegar upplýsingar, sundurliðaðar eftir sveitarfélögum, um fjölda nýrra íbúða á ári þar sem miðað er við íbúðir sem eru fokheldar eða lengra komnar á viðkomandi ári. Upplýsingarnar ná til 32 fjölmennustu sveitarfélaga landsins. Upplýsingar fyrir árin 2000–2004 koma fram í töflu 2 en tölur fyrir árið 2005 liggja ekki fyrir.

Tafla 2. Fjöldi nýrra íbúða á árunum 2000–2004.*


2000

2001

2002

2003

2004
Samtals nýjar
íbúðir 2000–2004
Reykjavíkurborg 591 442 740 892 847 3.512
Kópavogsbær 307 402 212 307 273 1.501
Hafnarfjarðarkaupstaður 209 246 250 291 260 1.256
Akureyrarkaupstaður 129 127 141 168 168 733
Reykjanesbær 52 33 92 65 53 295
Garðabær 147 70 80 50 240 587
Mosfellsbær 81 98 79 54 146 458
Sveitarfélagið Árborg 52 118 72 66 187 495
Akraneskaupstaður 39 35 44 22 53 193
Seltjarnarneskaupstaður 5 6 0 0 3 14
Vestmannaeyjabær 7 3 2 10 - 22
Sveitarfélagið Skagafjörður 4 15 11 33 27 90
Ísafjarðarbær 4 - - - 8 12
Fjarðabyggð 0 4 0 13 65 82
Fljótsdalshérað 17 7 25 15 50 114
Borgarbyggð 10 36 21 22 3 92
Grindavíkurkaupstaður 10 14 18 40 14 96
Húsavíkurbær 4 1 - - 1 6
Sveitarfélagið Hornafjörður 3 1 1 - 4 9
Sveitarfélagið Álftanes 91 12 5 92 75 275
Hveragerðisbær 6 16 22 32 42 118
Dalvíkurbyggð 1 1 3 3 2 10
Sveitarfélagið Ölfus 1 9 18 10 19 57
Snæfellsbær 4 - 3 3 1 11
Rangárþing eystra 3 5 3 20 10 41
Rangárþing ytra 17 19 23 14 12 85
Sandgerðisbær 4 7 7 11 22 51
Siglufjarðarkaupstaður - - - - - 0
Sveitarfélagið Garður 5 17 12 26 14 74
Húnaþing vestra 1 9 - 4 2 16
Stykkishólmsbær - 3 3 3 5 14
Vesturbyggð - - - - - 0
Samtals 1.804 1.756 1.887 2.266 2.606 10.319
*Miðað er við íbúðir fokheldar eða lengra komnar á viðkomandi ári.